AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Page 70
íbúðaskipulag í Norður-Noregi
Organisation. Þau hafa m.a. að markmiði sínu að
þróa byggð miðað við veðurfar á norðurslóðum
þannig að draga megi úr áhrifum veðurfræðilegra
þátta á mannlegt umhverfi. Árið 1990 var haldin al-
þjóðleg ráðstefna í Tromsö í Norður-Noregi. Sam-
fara henni var norrænum arkitektum boðið að taka
þátt í skipulags-og íbúðahönnun vegna nýs íbúða-
hverfis í bænum. ÍSARK varð fyrir valinu frá ís-
landi. í nýja hverfinu átti að tengja saman góðar
íbúðir í fjölbreyttum byggingum í umhverfi þar sem
tekið yrði á áhrifum vetrarríkisins á skipulag og
byggingar. Gerðar voru ýmsar tillögur og varð
íslenska tillagan grunnurinn að endanlegu skipula-
gi hverfisins sem Norðmenn útfærðu síðan sjálfir.
Þótti tillagan leysa best skipulag með tilliti til um-
hverfisgæða og veðurfars. Sem dæmi um
víxlverkandi áhrif sem koma ís-
lensku íbúðaskipulagi til góða héldu
nokkrir úr ÍSARK-hópnum ásamt
nýjum aðilum áfram með þessar
hugmyndir hérlendis um skipulag
beintengt veðuráhrifum undir nafn-
inu GJÓLA. Unnið er að tilrauna-
verkefni um áhrif veðurfars á íbúða-
skipulag.
ÍBÚOABYGGO UNDIRYIN-
DSORFNUM KLETTUM f
TASIILAQ
Myndir 3. Verk þetta er hönnun
36 íbúða í Tasiilaq á Grænlandi.
Um er að ræða heildarhönnun og
útboð á íbúðum í þremur áföngum
fyrir Tasiilaqbæ á austurströnd
landsins, unnið undirstjórn INI, sem
er nokkurs konar „Húsnæðisstofn-
un“ þar í landi. Öll hönnun verksins
er íslensk og er nýlokið við öll gögn til útboðs á
Grænlandi. Arkitektahlutann annaðist teiknistofan
ARKÍS í samráði við verkfræðistofuna Línuhönnun
sem er verkefnisstjórnandinn auk þess að sjá um
burðarþol og lagnir. Raftæknistofan annaðist alla
rafhönnun. Grænlendingar byggja á allt annan hátt
en íslendingar. Stutt er síðan menning þeirra þró-
aðist í átt að vestrænum sið og hefur það haft í för
með sér félagslega erfiðleika vegna skammrar að-
lögunar. Þetta kemur einnig fram í byggingarmáta
þeirra. íbúðarhús eru byggð samkvæmt danskri
fyrirmynd eins og byggt var þar snemma á þessari
öld, lítil hús með smáherbergjum. Nánast öll
íbúðarhús eru byggð þannig, lítil timburhús á
háum steyptum sökkli. Því varð að aðlaga hönn-
unina að þarlendum sið og sníða því þröngan
stakk, bæði í formi og í byggingakostnaði. Ljóst er
að miklir möguleikar gætu verið í íbúðaskipulagi
og hönnun á Grænlandi. Híbýli eru víða léleg og
þarf að byggja þúsundir íbúða á næstu árum til
þess að mæta þörfinni fyrir nútímahúsnæði um
leið og tengja þarf fyrirkomulag þess betur við
þarfirog menningu Grænlendinga. íslensk reynsla
og hugvit gætu átt þar stóran hlut að máli ef rétt er
á haldið og komið að framtíðarþróun á húsnæði í
þessu harðbýla landi.
ÖFLUG SÓKN
Til þess að hefja útflutning á hugviti á því sviði
sem hér er fjallað um þarf samstillt átak einstak-
68