AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Side 78

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Side 78
Lif í þéttbyli Byens livsformer Interpreting ways of living Norraent þéttbyli við aldamót Den nordiske byen ved et tidsskifte The nordic city at the turn of the century Ákveðið hefur verið að halda arkitektúrþríæring #1 í Osló, haustið 2000, þar sem tekin verður til meðferðar staða þéttbýlis á Norðurlöndum í dag og þau öfl sem kunna að hafa áhrif á þetta þéttbýli á komandi öld. í norrænu þéttbýli er að finna mik- ilvæga menningarhefð sem m.a. er grundvölluð á jafnrétti og nánum tengslum við náttúruna. Þetta þéttbýli verður nú fyrir margskonar nýjum staðbundnum og alþjóðlegum áhrifum. Ráðgert er að á þríæringnum verði framtíðar byggðaþróun Osló-svæðisins tekin til sérstakrar meðferðar með það að markmiði að hvetja til opinnar pólitískrar umræðu um þetta mál, sem hin- gað til hefur legið í láginni. Þarna verður m.a. um að ræða vinnufundi (workshops) þar sem ákveðin mál verða rædd; alþjóðleg arkitektasamkeppni verður haldin um 4 svæði í Osló; mismunandi þró- unarlíkön viðvíkjandi framtíðarþróun Osló- svæðisins verða kynnt, auk sýningar á mismunan- di íbúðargerðum og kostum við staðarval 100.000 nýrra íbúða. Að þessum þríæring stendur norska arkitek- tafélagið, NAL og fjölmargir aðrir aðilar. Bæklingar um þennan arkitektúrþríæring #1 liggja frammi á skrifstofu AVS að Garðastræti 17, RVK. ■ A vef okkar www.ev.is ma fa itarlegar upplýsingar um framleiðslu fyrirækisins ásamt teikningum og lýsingum á einingunum. Við veitum ráðgjöf og aðstoð við útfærslu teikninga og gerð burðarþolsútreikninga. Kostnaðaráætlanir og tilboð eru unnin fljótt og örugglega. Auk þess veitum við þjónustu við stærri framkvæmdir, s.s. flutninga, reistningu, öflun efnis og leigu búnaðar. Einingaverksmiðjan er framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra eininga. Tækjabúnaður og þekking gerir okkur kleift að afgreiða stór og smá byggingaverkefni fljótt og örugglega. Gæði framleiðslunnar er undir stoðugu eftirliti, bæði innra gæðaeftirliti og opinberu eftirliti Rannsóknarstofnunar Byggingariðnaðarins. EININGAVERKSMIÐJAN EHF. Breiðhöfða 10 • 112 Reykjavík • Sími 587 7770 • Fax 587 7775

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.