AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Page 78
Lif í þéttbyli
Byens livsformer
Interpreting ways of living
Norraent þéttbyli
við aldamót
Den nordiske byen ved et
tidsskifte
The nordic city at the turn
of the century
Ákveðið hefur verið að halda arkitektúrþríæring
#1 í Osló, haustið 2000, þar sem tekin verður til
meðferðar staða þéttbýlis á Norðurlöndum í dag
og þau öfl sem kunna að hafa áhrif á þetta þéttbýli
á komandi öld. í norrænu þéttbýli er að finna mik-
ilvæga menningarhefð sem m.a. er grundvölluð á
jafnrétti og nánum tengslum við náttúruna. Þetta
þéttbýli verður nú fyrir margskonar nýjum
staðbundnum og alþjóðlegum áhrifum.
Ráðgert er að á þríæringnum verði framtíðar
byggðaþróun Osló-svæðisins tekin til sérstakrar
meðferðar með það að markmiði að hvetja til
opinnar pólitískrar umræðu um þetta mál, sem hin-
gað til hefur legið í láginni. Þarna verður m.a. um
að ræða vinnufundi (workshops) þar sem ákveðin
mál verða rædd; alþjóðleg arkitektasamkeppni
verður haldin um 4 svæði í Osló; mismunandi þró-
unarlíkön viðvíkjandi framtíðarþróun Osló-
svæðisins verða kynnt, auk sýningar á mismunan-
di íbúðargerðum og kostum við staðarval 100.000
nýrra íbúða.
Að þessum þríæring stendur norska arkitek-
tafélagið, NAL og fjölmargir aðrir aðilar.
Bæklingar um þennan arkitektúrþríæring #1
liggja frammi á skrifstofu AVS að Garðastræti 17,
RVK. ■
A vef okkar
www.ev.is
ma fa itarlegar
upplýsingar um
framleiðslu
fyrirækisins
ásamt teikningum
og lýsingum á
einingunum.
Við veitum ráðgjöf og aðstoð við útfærslu
teikninga og gerð burðarþolsútreikninga.
Kostnaðaráætlanir og tilboð eru unnin fljótt
og örugglega. Auk þess veitum við þjónustu
við stærri framkvæmdir, s.s. flutninga,
reistningu, öflun efnis og leigu búnaðar.
Einingaverksmiðjan er framsækið fyrirtæki
sem sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra
eininga. Tækjabúnaður og þekking gerir
okkur kleift að afgreiða stór og smá
byggingaverkefni fljótt og örugglega.
Gæði framleiðslunnar er undir stoðugu
eftirliti, bæði innra gæðaeftirliti og opinberu
eftirliti Rannsóknarstofnunar
Byggingariðnaðarins.
EININGAVERKSMIÐJAN EHF.
Breiðhöfða 10 • 112 Reykjavík • Sími 587 7770 • Fax 587 7775