AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Qupperneq 19
Danmörk þar sem 30% fyrirtækja þar
í landi nota aðkeypta hönnunarþjón-
ustu í starfsemi sinni í dag, en stefnt
er að því að þetta hlutfall hækki í
50% í náinni framtíð. Svo til öll þau
lönd sem athuguð voru lögðu mikla
áhersla á aukna menntun til að auka
gæði hönnunar.
Hönnunardeild Listaháskólans er
þátttakandi í stórri rannsókn á við-
skiptastærð hönnunar í Evrópu í
samstarfi við viðskiptadeild Háskóla
íslands og erlenda háskóla. Þessari
rannsókn er stjórnað af sænskum
aðilum og áhugavert verður að skoða
niðurstöður hennar þegar þær liggja
fyrir, en áætlað er að rannsóknin taki
1-2 ár.
Síðastliðið vor starfaði nefnd á vegum
viðskipta- og iðnaðarráðuneytis sem
skoðaði umhverfi hönnunar á íslandi.
Nefndin ráðfærði sig við nokkuð
marga aðila sem nota hönnun í at-
vinnulífinu og hefur gert tillögur til ráð-
herra um aðgerðir til að styrkja hönn-
un á íslandi, til dæmis með því
að koma á stað átaki í formi hönnun-
arstöðvar (Design Centre) í einhverju
formi. Næsta skrefið hér á landi er
að móta stefnu um hönnun almennt í
samfélaginu, en einungis nokkur lönd
hafa gert þetta ennþá, þó að víða í
Evrópu sé verið einmitt þessa dag-
ana að vinna að þessu. Þau lönd
sem eru komin hvað lengst á veg í
þessum málum eru Norðurlöndin
með Finna í fararbroddi, og síðan
Bretland og Holland. Ríkisstjórnir
þessara landa hafa tekið ákvarðanir
um vægi hönnunar í ákvarðanatöku
um samfélagsbreytingar, gæðastaðla
og menntun. Þessi vinna er til eftir-
breytni. ■
Governmental Design Policy
Halldór Gíslason, The Dean of Architecture and
Design Department, lceland Academy of the Arts
(LHÍ)
An organisation of the top 40 design
schools in Europe, of which the
lceland Academy of the Arts’
Department of Architecture and
Design is part, conducted a study of
the design policy of governments in
25 countries. This investigation was
done to explore the emphasis and
range of design as a part of the
economy. Various factors were stud-
ied, but not one prevails in its con-
clusion. Þart of what was studied
was, for example, how many compa-
nies used design in their offices, and
how governments used design in the
role of service.
Although not every avenue was
explored in this study, many coun-
tries are shown to have done their
part in allowing important design to
slowly hold continued growth, and
develop business and industry. There
is a prevailing mood in their study
that if a country wishes to continue
competitiveness in the inter-national
community, then it will use design to
be a stronger part of the economy.
avs l 7