AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Blaðsíða 68
„Vin“ í Reykjavík
æ
t
'CO
05
c
‘c
c
af tækjasal og hóptímasal, heilsulind
þar sem eru tvær ilmgufur, tveir
nuddpottar og setlaug. Einnig er
slökunarherbergi á þessu svæði og
útiverönd með „sauna“ og sólbaðs-
aðstöðu. Þriðji hlutinn er meðferðar-
hlutinn með 11 herbergjum fyrir
snyrti- og nuddmeðferðir.
Heilsulindin NordicaSpa, sem er í
Nordica Hótel, er einn af heitustu
stöðunum í dag. Hvern dreymir ekki
um að komast í afslappað umhverfi,
umlukinn heitum vatnsstraumum og
höndum sem strjúka strekkta vöð-
vana, með lokuð augun meðan hlýleg
birtan bærist á vatnsyfirborðinu.
„Við hönnun NordicaSpa var leitast
við að skapa hlýlegt og róandi and-
rúmsloft með tilvísunum í náttúru
landsins, að skapa vin í erli borgar-
lífsins.
í afgreiðslu tekur á móti gestum
veggur sem klæddur er steinvölum
og gefur tóninn fyrir það sem á eftir
kemur. Á spa-svæðinu eru veggir
klæddir með íslensku grjóti, viðarlistar
eru í lofti og súlur og veggir eru
klæddir með glermósaiki í bláum og
grænum litum. Á göngubraut út að
pottum og á gólfi í hvíldarherbergi
eru stuðlabergsheilur, „ segir Björgvin
Snæbjörnsson - Arkitekt FAÍ, sem sá
um að umbreyta NordicaSpa frá því
sem áður var í það sem heilsulindin
er nú.
Efnisval ásamt því hvernig lýsing er
notuð til að skilgreina rými og undir-
strika form á stóran þátt í því að
skapa það róandi og „dularfulla" and-
rúmsloft sem leitað var eftir og veita
NordicaSpa sérstöðu meðal heilsu-
linda hér heima og erlendis.
NordicaSpa er alls um 870 fermetrar
að flatarmáli og skiptist í þrjá megin-
hluta: heilsurækt sem samanstendur
NordicaSpa er stækkun á eldri
heilsulind sem hönnuð var árið 1997
og tók hönnun hennar mið af því að
nýta blautgufur og pottasvæði eldri
heilsulindarinnar og tengja þeirri nýju.
Búningsklefar þeirrar eldri voru of litlir
og var brugðið á það ráð að sameina
eldri búningsklefa í einn og útbúa
njan hinum megin við pottasvæðið.
Einnig var bætt við stórri setlaug á
pottasvæðið til viðbótar við tvo nudd-
potta sem fyrir voru.
En eins og einhver sagði, sjón er
sögu ríkari, og upplífunin er engu lík! ■
66 avs