FLE blaðið - 01.01.2017, Qupperneq 4
2 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
aF stjórnarborði
Margrét Pétursdóttir er formaður FLE
Stjórn hittist reglulega og að jafnaði eru tólf stjórnarfundir á
starfsárinu. Í stjórn sitja auk formanns: varaformaður Ágúst
Jóhannesson, Ljósbrá Baldursdóttir gjaldkeri, Guðni Þór
Gunnarsson meðstjórnandi og Sif Jónsdóttir ritari sem nýlega
kom inn í stjórnina í stað Önnu Birgittu Geirfinnsdóttur. Stjórn
hefur virkjað áfram gjaldkera stjórnar í innra eftirliti félagsins og
hefur það gengið vel og formfesta í innra eftirliti þannig aukin.
Má segja að rekstur félagsins sé eins og best er á kosið miðað
við stefnu og umfang. Félagið er að sinna margs konar málefn-
um á þágu félagsmanna stórum og smáum. Margt er vel gert
eins eins og niðurstaða könnunar um fræðslumál félagsins ber
með sér, en allt er breytingum háð og ný hagsmunamál koma
upp sem þarfnast skoðunar eins og skilafrestir Ríkisskattstjóra
á framtölum. Stjórnin þarf því að að beina kröftum sínum að
ákveðnum málum og beina athyglinni að stærstu málunum svo
einhver slagkraftur myndist.
krÍunesFundurinn
Stjórn hóf starfið með því að halda svokallaðan „Kríunesfund“
sem haldinn var þann 8. desember og var það í sjötta skipti
sem samskonar fundur er haldinn. Um er að ræða vinnufund
í hálfan dag þar sem mæta auk stjórnar, framkvæmdastjóra
og skrifstofustjóra nýkjörnir formenn allra nefnda sem hafa þá
setið í nefndum í þrjú ár og því líklegir til að hafa skoðanir á
málum. Fundarmenn fá spurningarnar fyrirfram og geta rætt
þær við þá nefnd sem þeir stýra. Að mínu viti er þessi fundur
mikilvægur svo raddir félagsmanna um áherslur og breytingar
heyrist en að sjálfsögðu er mönnum frjálst að ræða hvaðeina
sem á þeim brennur. Að þessu sinni voru fundarmenn beðnir
að hugsa um starfsemi FLE og hvort þeir vildu sjá breytingar
á henni, hvort FLE ætti að beita sér fyrir því að halda áfram
að sinna gæðaeftirliti, hvernig hægt sé að dýpka umræðu í
nefndum til að þær geti verið til stuðnings fyrir félagsmenn,
hver ættu að vera stærðarmörk vegna endurskoðunar og hver
ættu að vera áhersluefni stjórnar á starfsárinu. Fundurinn gekk
mjög vel og í framhaldi af honum gekk stjórn frá starfsáætlun
fyrir starfsárið framundan þar sem verkefnum var skipti niður
á fundi ársins svo hægt væri að fylgjast með framvindu þeirra.
Ímyndarmál
Að öðrum málum ólöstuðum hafa ímyndamál stéttarinnar verið
ofarlega á borði stjórnar. Það hefur mikið verið rætt innan okkar
raða, að ímynd okkar hafi beðið hnekki í kjölfar efnahagshruns-
ins og að við verðum að fara í markvissa vinnu til að styrkja
og efla hana. Fyrirliggjandi er könnun frá árinu 2003 sem FLE
lét vinna og nú var ákveðið að láta gera svipaða könnun og þá
til að geta borið þær saman og greint þróunina. Fékk stjórn
Capacent til liðs við sig og farið var af stað með viðhorfskönn-
Þau gleðitíðindi
áttu sér stað þann 17. júní 2016
að Stefán Svavarsson endurskoðandi
hlaut riddarakross, heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu