FLE blaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 27

FLE blaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 27
25FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017 samningstímanum og vextir vegna leigugreiðslna eru gjald- færðir með fjármagnskostnaði. Tvær undanþágur eru þó frá því að færa skuli leigusamninga í efnahagsreikning, en þær eru fyrir leigusamninga til skemmri tíma en 12 mánaða og þegar leigueignir teljast hafa lágt virði (e. low value assets). Staðallinn setur ekki fram nánari skilgreiningu á því hvað teljist vera eignir með lágt virði, en IASB hefur gefið til kynna að æskilegt viðmið sé 5.000 bandaríkjadollarar. Samkvæmt staðlinum eru það yfirráð leigutaka yfir leigueign sem skilja milli þess hvort um er að ræða leigusamning eða þjónustusamning. IFRS 16 fjallar ekki um reikningshaldslega meðferð á þjónustusamningum sem verða eftir sem áður gjald- færðir á því tímabili sem þjónustan er þegin. Ekki er þó búist við því að þessi nýja skilgreining leiði til þess að samningar sem flokkaðir eru sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 verði flokkaðir sem þjónustusamningar samkvæmt IFRS 17. Þó getur komið til þess í tilfellum þar sem leiguverð er ákvarðandi þáttur við flokkun í fjármögnunarleigusamninga samkvæmt IAS 17 (núvirði lágmarks leigugreiðslna er að minnsta kosti það sama og gangvirði leigðu eignarinnar). Fyrir félög sem gert hafa rekstrarleigusamninga mun IFRS 16 hafa áhrif á flokkun gjalda í rekstrarreikningi. Í stað þess að gjaldfæra þá samninga sem núna flokkast til rekstrarleigu línu- lega á meðal rekstrargjalda yfir líftíma þeirra verður nýtingar- rétturinn gjaldfærður með afskriftum á líftíma samningsins og vextir gjaldfærðir meðal fjármagnsliða. Nýtingarrétturinn er yfir- leitt afskrifaður línulega, en vaxtakostnaðurinn er mestur í upp- hafi og lækkar eftir því sem líður á samninginn samhliða því sem núvirði lágmarksleigugreiðslna (höfuðstóllinn) lækkar. Gjaldfærslan mun því skiptast í rekstrar- og fjármagnskostnað sem verður framhlaðinn. Áhrif innleiðingar staðalsins á sjóðstreymi leigutaka fyrir rekstr- arleigusamninga eru að hluti leigugreiðslna mun koma fram í fjárfestingarhreyfingum í stað rekstrarhreyfinga. Þetta er vegna þess að samkvæmt IAS 17 sýndu félög greiðslur af leigusamn- ingum með rekstrarhreyfingum, en samkvæmt IFRS 16 verða greiðslur af höfuðstól sýndar meðal fjárfestingarhreyfinga og vaxtagreiðslur flokkaðar með rekstrarhreyfingum eða fjárfest- ingarhreyfingum (valkvætt samkvæmt IFRS). Nýjar reikningsskilaaðferðir IFRS 16 mun hafa áhrif á marga frammistöðumælikvarða og kennitölur. Gjaldfærsla færist að hluta til yfir í fjármagnsliði sem mun hækka rekstrarafkomu, EBITDA og EBIT félaga með rekstrarleigusamninga. Með því að færa alla leigusamninga í efnahagsreikning mun eiginfjár- hlutfall lækka. Fyrir félög þar sem slíkir mælikvarðar í reiknings- skilum hafa áhrif á lánaskilmála er mikilvægt að meta áhrif af innleiðingunni tímanlega svo ekkert komi óþægilega á óvart og allar upplýsingar séu tiltækar þegar samið (eða endursamið) er um fjármögnun. Það má gera ráð fyrir því að áhrifa staðalsins gæti einna helst hjá félögum sem gert hafa marga rekstrar- leigusamninga eða fyrir háar fjárhæðir og til skamms tíma (t.a.m. verslanakeðjur sem leigja húsnæði undir verslanir og flugfélög með flugvélar í rekstrarleigu). Við innleiðingu IFRS 16 verður ekki breyting á reikningshalds- legri meðferð leigusamninga í reikningsskilum leigusala, ef undan eru skildir framleigusamningar (e. sublease). Leigusali sem framleigir þarf að færa bæði upphaflega leigusamninginn og framleigusamninginn í reikningsskil sín, þ.e. bæði sem leigutaki og leigusali. Því verður breyting á reikningshaldslegri meðferð ef upphaflegi samningurinn hefur verið flokkaður sem rekstrarleiga. Þá gerir staðallinn ríkari skýringarkröfur um leigu- samninga í reikningsskilum leigusala. Ljóst er að þessi nýi staðall muna auka gagnsæi í reiknings- skilum. Sem dæmi má taka að sum flugfélög eiga meirihlutann af sínum flota á meðan önnur leigja stóran hluta hans. IFRS 16 mun gera það að verkum að í báðum þessum tilvikum mun flugflotinn koma fram í efnahagsreikningi. Að lokum má velta því upp hvort að þessi nýi staðall muni ekki einnig hafa áhrif á félög sem semja reikningsskil sín í samræmi við lög um ársreikninga. Í 29. gr. laganna er vísað til þess að fjármögnunarleigusamningar skuli færðir í efnahagsreikning í samræmi við settar reikningsskilareglur (IFRS). Þar sem ekki verður lengur gerður greinarmunur á fjármögnunarleigu og rekstrarleigu í reikningsskilum leigutaka má draga þá ályktun að vísan ársreikningalaga eigi við um alla leigusamninga sam- kvæmt skilgreiningu IFRS 16. Signý Magnúsdóttir og Helgi Einar Karlsson Það má gera ráð fyrir því að áhrifa staðalsins gæti einna helst hjá félögum sem gert hafa marga rekstrarleigusamninga eða fyrir háar fjárhæðir og til skamms tíma

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.