FLE blaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 17
15FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
Ég tel að binding hefjist frá og með árinu 2016 en að hlutdeild
fyrri ára sé óbundin enda sé ekki um breytingu á reiknings-
skilaaðferð að ræða. Að sama skapi ætti móttekinn arður á
árinu 2016 sem kemur til vegna afkomu dóttur- og hlutdeildar-
félaga vegna fyrri ára ekki að færast til lækkunar við útreikning
á bindingu fyrri ára. Með bindingu vegna fyrri ára væri tekinn af
hluthöfum réttur sem þeir áttu í árslok 2015 til að greiða út arð.
ViðskiptaVild
Viðskiptavild skal nú ávallt afskrifuð á tíu árum. Áður var heimilt
að afskrifa hana með kerfisbundnum hætti á allt að 20 árum
eða meta árlega með virðisprófi. Hér er gengið lengra en sam-
kvæmt tilskipun Evrópusambandsins þar sem segir að afskrifa
skuli á áætluðum nýtingartíma en sé ekki hægt að ákvarða
nýtingartíma viðskiptavildar skuli afskrifa hana á tímabili sem
aðildarríki ákveða og má vera á bilinu fimm til tíu ár. Mörg
íslensk félög hafa beitt heimild til að meta virðisrýrnun árlega í
stað þess að afskrifa hana og vitað er að sum þessara félaga
hafa ákveðið að taka upp alþjóðlega reikningsskilastaðla.
Samkvæmt alþjóðlegu stöðlunum er óheimilt að afskrifa við-
skiptavild heldur skal hún metin árlega með tilliti til virðisrýrn-
unar. Hér hafa komið upp nokkur álitamál svo sem um
afskriftatíma ef nýtingartími viðskiptavildar er metinn vera
skemmri en tíu ár. Á þá samt sem áður að afskrifa hana á tíu
árum? Líklega er ekki svo því við lagabreytingarnar kom inn
ákvæði þess efnis að hafi viðskiptavild sætt niðurfærslu sé
óheimilt að færa hana til fyrra horfs. Því virðist heimilt að
afskrifa hana á skemmri tíma en tíu árum í slíkum tilvikum.
Slíkt er eðlilegt enda ein meginregla reikningshaldsins að gæta
skuli að því að ofmeta ekki eignir.
allir ársreikningar skulu Vera á Íslensku
Hingað til hefur félögum sem hafa annan starfrækslugjaldmiðil
en íslenska krónu verið heimilt að birta ársreikning sinn á
ensku eða dönsku í stað íslensku. Þessu hefur nú verið breytt
og skal ársreikningur þessara félaga vera á íslensku en heimilt
er að hafa hann jafnframt á ensku ef nauðsyn ber til. Skráð
félög með annan starfrækslugjaldmiðil en krónu hafa sum ein-
ungis birt reikningsskil sín á ensku. Nú vaknar sú spurning
hvort þeim sé heimilt að leggja enska útgáfu ársreikningsins
fram til samþykktar á. Ekki verður séð af þessu ákvæði laganna
að það sé óheimilt. Hins vegar er fortakslaust að skila þarf árs-
reikningi á íslensku til ársreikningaskrár.
er hnappurinn hjómið eitt?
Í lögunum eru nú ákvæði um að í stað ársreiknings sé örfé-
lögum heimilt, með ákveðnum undantekningum, að semja
rekstraryfirlit og efnahagsyfirlit byggð á skattframtali félagsins
og teljist slík rekstraryfirlit og efnahagsyfirlit gefa glögga mynd
af afkomu og efnahag félagsins. Þessi heimild hefur gengið
undir heitinu „hnappurinn“. Líklega teljast um 80% íslenskra
félaga örfélög. Ársreikningaskrá skal gera þessum félögum
kleift, við rafræn skil til skrárinnar, að nota innsendar upplýs-
ingar til ríkisskattstjóra til að semja rekstraryfirlitið og efna-
hagsyfirlitið. Ekki er skylt að skoðunarmaður yfirfari slík reikn-
ingsyfirlit. Óljóst er hvert gildi hnappsins er, þ.e. hvort félög
Hér er Sæmundur ásamt Hörpu Theódórsdóttur viðskiptafræðingi hjá ANR en þau héldu bæði erindi á Reikningsskiladegi FLE