FLE blaðið - 01.01.2017, Page 8
6 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
Félagið stóð fyrir samtals 24 atburðum á starfsárinu sem veittu
um 50 endurmenntunareiningar sem er sambærilegt við árið
áður. Heildarmæting á þessa atburði var tæplega 1.500 manns
samanborið við 1.400 á fyrra ári.
Það er aftur á móti áhyggjuefni hvernig hádegisverðafundirnir
hafa þróast. Fyrir um fimm árum síðan og árin þar á undan
voru haldnir 9-10 hádegisfundir á ári hverju og mæting að með-
altali um 50 félagsmenn. Undanfarin 2-3 ár höfum við verið að
fækka fundum til að ná upp mætingunni en á síðasta starfs-
ári var meðaltalsmæting samt ekki nema um 25 félagsmenn.
Á nýliðnu starfsári þurftum við að fella niður einn fund vegna
lítillar bókunar og svo aftur á nýbyrjuðu starfsári núna í október
þegar einungis fjórir höfðu bókað sig daginn fyrir fund. Ekki
rekur mig minni til þess að það hafi gerst áður síðan ég kom til
starfa hjá félaginu og jafnvel fyrir þann tíma. Ný stjórn mun því
þurfa að skoða þessi mál vandlega.
Þrátt fyrir minni mætingu á hádegisverðarfundi félagsins sem
nemur rúmlega 100 manns þá var fjölgun á öðrum atburðum
um rúmlega 200 manns. Morgunkornin gengu mjög vel en þar
var fjölgun um 40%. Mæting á ráðstefnur var með svipuðum
hætti og árið áður, en þær skila tæplega helmingi í heildarmæt-
ingu. Námskeið og fræðslufundir stóðu jafnframt undir sínu og
gott betur en þar var aukning sem nemur um 25%. Af ein-
stökum viðburðum má nefna að fjölmennasta morgunkornið
fjallaði um Milestone dóminn þar sem mættu 113 félagsmenn.
Fjölmennasta námskeiðið fjallaði um fyrirtækjamenningu, sið-
fræði eða spilling en þar mættu 82. Að lokum má geta þess
að fjölmennasta ráðstefnan sem FLE hélt á starfsárinu var
Reikningsskiladagurinn þar sem 188 mættu til að hlýða á boð-
skapinn.
neFndarstarF
Að venju eru fastanefndir félagsins mikilvægur hlekkur í
starfsemi þess og bera oft hitann og þungann af ákveðn-
um málefnum. Á liðnu starfsári hefur meginþungi starfa
Reikningsskilanefndarinnar legið í því að fylgja eftir og kynna
breytingar á ársreikningslögunum frá síðast liðnum vetri. Það
endurspeglaðist meðal annars í því að Reikningsskiladagurinn
núna í september fjallaði meira og minna um þær breytingar og
ýmis önnur atriði sem þær munu leiða af sér.
starFsemi Fle
byggt á skýrslu Frá aðalFundi 2016
Sigurður B. Arnþórsson er framkvæmdastjóri FLE
Að venju eru
fastanefndir félagsins mikilvægur
hlekkur í starfsemi þess og bera oft
hitann og þungann af ákveðnum
málefnum