FLE blaðið - 01.01.2017, Síða 10
8 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
hugum stjórnenda í fyrirtækjum og meðal almennings. Þá er
nefndinni gefinn tími til að vinna að þessu í allt að þrjú ár.
En við þurfum jafnframt að hafa í huga að hluti af ímynd
félagsins snýr ekki síður inn á við, að okkur félagsmönnum
sjálfum. Við þurfum því að spyrja okkur grundvallarspurninga:
Fyrir hvað viljum við að félagið okkar standi og hvaða starfsemi
á að fara þar fram? Ennfremur, hver framtíðarsýn okkar er og
hvaða áhrif munu þær hugsanlegu fyrirhuguðu breytingar hafa
sem framundan eru eins og tilfærsla gæðaeftirlits og afnám
skylduaðildar. Til að taka samtal um þessi atriði og ýmis önnur
sem brenna á félagsmönnum hyggst framkvæmdastjóri heim-
sækja sem flest endurskoðunarfyrirtæki á komandi misserum
og hefur reyndar þegar farið í nokkrar slíkar heimsóknir sem
hafa verið afar fróðlegar og málefnalegar.
Forsvarsmenn endurskoðendafyrirtækja eru hvattir til að hafa
samband ef þeir hafa áhuga á slíku samtali. Félagsmönnum er
bent á að skrifstofa félagsins er alltaf opin ef ykkur liggur eitt-
hvað á hjarta sem þið viljið koma á framfæri.
Félagsmenn
Eins og fram kemur í árskýrslunni á yfirliti um fjölda endurskoð-
enda þá hefur hann nánast staðið í stað undanfarin ár. Og það
þrátt fyrir að á síðast liðnum þremur árum hafi útskrifast 23
einstaklingar. Á sama tíma hefur fjöldi endurskoðenda sem
starfa hjá endurskoðunarfyrirtæki jafnframt fækkað úr 261 í
246. Stjórnin hefur áhyggjur af þessari þróun en þegar fara
saman á sama tíma stórir árgangar sem eru að nálgast starfs-
lok og fækkandi einstaklingum sem taka löggildingu þá er ekki
von á góðu. Stjórn félagsins hefur því fjallað um þetta mál frá
ýmsum hliðum. Er þetta ímyndarmál vegna fjölmiðlaumfjöll-
unar um störf okkar sem endurspeglast í minni áhuga hjá ungu
fólki; er þetta undirbúningurinn á háskólastigi; er þetta vegna
mismunandi aðbúnaðar hjá endurskoðunarfyrirtækjum; eru
prófin of þung og óraunhæf; eru skyldur og ábyrgð endurskoð-
enda að fæla frá; og síðast en ekki síst eru kjör og umbun fyrir
mikla ábyrgð stéttarinnar með þeim hætti að ekki þykir spenn-
andi? Þetta eru verkefni sem blasa við okkur sem ég tel víst að
Ímyndarnefndin og Menntunarnefnd félagsins munu þurfa að
taka til umfjöllunar á starfsárinu.
erlend áhriF
Eitt stærsta verkefni félagsins á komandi starfsári verður
áframhaldandi vinna á vegum ráðuneytisins við innleiðingu
Evróputilskipunarinnar um endurskoðun. Þar er brýnt að gæta
hagsmuna okkar sem áður hefur verið fjallað um á vettvangi
félagsins svo sem er varða gæðaeftirlitsmál, alþjóðlega staðla,
hlutverk endurskoðendaráðs, skylduaðild að FLE, lengd ráðning-
artíma, svo dæmi séu tekin.
Gæðanefnd að störfum
Áhugasamir nemar á spjallstofu
Framkvæmdastjóri fer yfir þátttökulista á Skattadegi