FLE blaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 13
11FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
tryggingagjaldi sem innheimta skal af launatekjum er ekki frestað
og ber að skila því við nýtingu kaupréttar. Við framlagningu frum-
varpsins var ákvæðið þannig:
Tekjur samkvæmt þessari grein koma til skattlagningar þegar
hlutabréfin eru seld. Telst mismunur á kaupverði hlutabréfa
samkvæmt kaupréttarsamningi og söluverði bréfanna til
launatekna.
Í meðförum Alþingis var ákvæðinu breytt þannig að skattstofninn
og skattlagning kaupréttar sett í sama far og áður, þó þannig að
skattlagningu og greiðslu skattsins er frestað fram að sölu. Með
breytingartillögu efna¬hags- og viðskipta¬nefndar Alþingis fylgdi
nefndarálit og segir þar m.a.:
Meginreglan verði áfram sú að líta skuli á mismun á kaup-
verði samkvæmt kaupréttarsamningi og gangverði bréfanna
þegar kaupréttur er nýttur sem starfstengda launagreiðslu
sem sætir sömu skattalegri meðferð og aðrar launa-
greiðslur.
Eins og segir áður þá voru ekki gerðar breytingar á öðrum skatta-
lögum samfara þessari breytingu og ber því launagreiðanda að
greiða tryggingagjald af mismun á gangverði og kaupverði.
Þá er spurningin hvort skattlagningu útsvars skuli einnig frestað.
Í 1.mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga
kemur fram að stofn til álagningar útsvars skuli vera hinn sami og
tekjuskattsstofn. Jafnframt segir í 2. mgr 22. gr. sömu laga að
ákvæði tekjuskattslaga gildi um útsvar eftir því sem við á
nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum. Af þessu verður
ekki annað ráðið en frestun skattlagningar skuli ennfremur eiga
við í þessu sambandi. Hins vegar liggur ekki ljóst fyrir hver á að
skila skattinum þegar kemur að skuldadögum.
b) Hvernig fer með skattlagningu kaupréttar milli landa?
Flest ríki skattleggja kauprétt við nýtingu/innlausn eða við öflun
hans. Þá er spurning hvernig fari með þegar kaupréttur er skatt-
lagður erlendis en einnig á Íslandi þegar tímasetning skattlagn-
ingar er ekki sú sama. Til dæmis ef einstaklingur sem ber ótak-
markaða skattskyldu á Íslandi er skattlagður að hluta eða öllu
leyti vegna kaupréttar erlendis á árinu 2017, en á Íslandi er frest-
að skattlagningu þar til hlutabréf eru seld á árinu 2020. Verður í
þessu tilviki hægt að fá frádrátt vegna hinnar erlendu skattlagn-
ingar þegar skattlagning fer fram á Íslandi 2020? Víst er að þetta
er mjög óljóst, alla vega er erfitt að sjá að slíkt sé heimilt, a.m.k.
miðað við núverandi löggjöf.
c) Hvernig verður skattlagningu háttað við andlát
kaupréttarhafa?
Engin sérstök ákvæði eru um hvernig fara skuli með umrædda
frestun eða skattkvöð við þær aðstæður þegar kaupréttarhafinn
deyr áður en hann selur bréfin. Munu erfingjar njóta skattfrestun-
arinnar eins og hinn látni? Að minnsta kosti er það vafa undirorpið
enda er einungis eitt ákvæði í tekjuskattslögum þar sem réttur
arfláta flyst yfir til erfingja og það er vegna íbúðarhúsnæðis, sbr.
23. gr. tekjuskattslaga. Verður þá dánarbúið að greiða skattinn
strax við andlát þar sem frestunin fellur eðli málsins samkvæmt
niður við aðilaskiptin, þ.e. litið á aðilaskiptin sem sölu? Ef svo er,
verður litið svo á að skattlagningin eigi að vera á hinn látna eða á
dánarbúið. Erfitt verður að leysa úr slíkum flækjum enda ljóst að
engin sala hefur farið fram.
lokaorð
Að lokum verður ekki hjá því komist að velta fyrir sér hvernig
staðgreiðsla skatts fer fram við sölu ef breytingar hafa orðið á
starfssambandi skattaðila. Ólíklegt er að hinum nýja launagreið-
anda beri að halda eftir greiðslu enda er ekki um að ræða starfs-
tengda launagreiðslu frá honum. Líklegast verður niðurstaðan sú
að skattaðili sjálfur verður að skila skattinum og þá í álagningu.
Sömu vandamálin koma upp eins og áður var minnt á hvað varðar
þær aðstæður þegar kaupréttarhafi deyr.
Hér hefur verið stiklað á stóru en sannarlega koma upp fleiri
vandamál við framkvæmd ákvæðisins.
Vala Valtýsdóttir