FLE blaðið - 01.01.2017, Page 16

FLE blaðið - 01.01.2017, Page 16
14 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017 ársreikningalög Sæmundur Valdimarsson er endurskoðandi hjá KPMG Upp hafa komið ýmis álitamál um beitingu tiltekinna lagaákvæða. Það var viðbúið að svo yrði, jafnvel þó vandað sé til verka við lagasetningu og reynt að fremsta megni að hafa lagaákvæði skýr álitamál og önnur mál Í júní 2016 samþykkti alþingi breytingar á lögum um ársreikn- inga. Breytingarnar, sem að stórum hluta má rekja til innleið- ingar á tilskipunum Evrópusambandsins, eru afturvirkar og gilda fyrir fjárhagsár sem hófust 1. janúar sama ár eða síðar. Í innsendum erindum við frumvarp að breytingalögunum kom fram að afturvirk lagasetning væri óheppileg. Ekki var tekið tillit til þeirra ábendinga. Upp hafa komið ýmis álitamál um beitingu tiltekinna lagaákvæða. Það var viðbúið að svo yrði, jafnvel þó vandað sé til verka við lagasetningu og reynt að fremsta megni að hafa lagaákvæði skýr. Erfitt er að sjá hver álitamálin verða fyrr en að beitingu nýrra ákvæða kemur. Því hefði verið heppi- legra að lögin giltu frá og með árinu 2017, svo tími ynnist til að kryfja til mergjar það sem óljóst kann að vera. Má til saman- burðar geta þess að þegar gefnir eru út nýir alþjóðlegir reikn- ingsskilastaðlar er þeim félögum er þeim beita gefinn tími, jafnvel nokkur ár, til að undirbúa breytingar. Í þessari grein verða tíunduð nokkur efnisatriði lagabreytinganna og gerð grein fyrir álitamálum sem upp hafa komið. Svörum kann að vera áfátt í sumu enda ekki öll kurl komin til grafar. Það er von greinarhöfundar að álitsnefnd FLE, nýskipað reikningsskilaráð og eftir atvikum skattyfirvöld muni sem allra fyrst senda frá sér álit á þeim málum sem hér verða tíunduð. hlutdeild og arður Segja má að með breytingum á ársreikningalögum sé búið að rjúfa sambandið milli hagnaðar og óráðstafaðs eigin fjár. Þannig er ekki sjálfgefið að hagnaður sem færður er í rekstrar- reikning sé að öllu leyti tækur til arðgreiðslna þó að um óráð- stafað eigið fé sé að ræða . Meðal þess sem hér skiptir máli er ákvæði um að nemi hlutdeild sem færð er í rekstrarreikning vegna afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga hærri fjárhæð en sem nemur mótteknum arði, eða þeim arði sem ákveðið hefur verið að úthluta, skuli það sem umfram er fært á bundinn reikning meðal eigin fjár. Þrátt fyrir að ákvæðið virðist einfalt við fyrstu sýn hafa vaknað ýmsar spurningar um beitingu þess. Má þar nefna eftirfarandi: 1. Skal reikna út bindingu vegna hlutdeildar umfram arð vegna fyrri ára, þ.e. reikna út bindingu miðað við 1. janúar 2016 eða hefst bindingin frá og með árinu 2016? 2. Ef hlutdeild frá fyrri árum telst óbundin skal þá samt sem áður færa móttekinn arð sem rekja má til afkomu fyrri ára til lækkunar á útreiknaðri bindingu? 3. Má eða skal við útreikninginn jafna saman hlutdeild í hagnaði eins félags á móti hlutdeild í tapi annars félags?

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.