FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 2

FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 2
ÚTG: FÉLAG LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA © Aðsendar greinar í blaðinu eru á ábyrgð höfunda en að öðru leyti er útgáfa blaðsins á ábyrgð ritnefndar FLE. FLE blaðið má ekki afrita með neinum hætti, að hluta til eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfundarrétthafa. VINNSLA BLAÐSINS RITNEFND FLE: Benóní Torfi Eggertsson, formaður Ágústa Katrín Guðmundsdóttir Herbert Baldursson Kjartan Arnfinnsson Prentun: GuðjónÓ Umsjón: Hrafnhildur Hreinsdóttir Janúar 2019, 41. árgangur 1. Tölublað SKRIFSTOFA FLE, HELSTU UPPLÝSINGAR Skrifstofa FLE, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, er opin virka daga kl. 9-15 Sími: 568 8118, Tölvupóstfang: fle@fle.is, Vefsíða FLE: www.fle.is Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri sigurdur@fle.is Hrafnhildur Hreinsdóttir, skrifstofustjóri fle@fle.is Þrátt fyrir töluverða endurnýjun í ritnefnd FLE blaðsins á árinu 2018, þar sem tveir nefndarmenn þeir Arnar Már Jóhannesson og Ingvi Már Bergmann hurfu á braut, kemur FLE blaðið út í 41 sinn frá árinu 1978. Þeim er hér með þakkað framlag þeirra til útgáfu FLE blaðsins á undanförnum árum. Nýir nefndarmenn eru þau Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Herbert Baldursson og Kjartan Arnfinnsson en fyrir í nefndinni sat Benóní Torfi Eggertsson með árs reynslu af útgáfu FLE blaðsins. Blaðið er eins og fyrri blöð fullt af athyglisverðum og skemmtilegum greinum. Fyrst má nefna áhugaverðar greinar annars vegar um ófjárhagslega upplýsinga- gjöf og hins vegar um alþjóðlegan skattarétt. Bæði þessi efni eru mikið í deiglunni núna og koma inn á störf marga endurskoðanda. Einnig eru kynnt til sögunnar frumvarp til nýrra laga um endurskoðendur og endurskoðun sem tímabært er fyrir alla endurskoð- endur að kynna sér. Síðan vill svo skemmtilega til að á síðasta ári hvarf Skúli Eggert Þórðarson úr starfi ríkis- skattstjóra og varð yfirmaður Ríkisendurskoðunar og Snorri Olsen hvarf úr starfi tollstjóra og tók við starfi ríkisskattstjóra. Á þessum tímamótum tók FLE blað- ið hús á þessum heiðursmönnum og ræddi við þá á léttari nótunum. Einnig er í blaðinu viðtal við Margréti Pétursdóttur endurskoðanda í tilefni þess að hún var á árinu kosin í stjórn IFAC, Alþjóðasambands endur- skoðenda. Íslensk skattamál fá að venju sína umfjöll- un í blaðinu en í því eru þrjár greinar með snertiflöt við skattinn: í fyrsta lagi er grein um breytingar á virðis- aukaskatti vegna þjónustu á milli landa; í öðru lagi er grein um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og í þriðja lagi grein um milliverðlagningu. Tíu ára afmælis hrunsins er líka minnst í blaðinu en í því er grein þar sem fjallað er um breytingar á endurskoðun frá hruni. Starfsemi FLE á árinu fær sína hefðbundnu umfjöllun og að auki er fjallað um ferð félagsmanna og gesta þeirra til Brussel bæði í máli og myndum. Í upphafs- málsgreininni var komið inn á reynsluleysi nýrra rit- nefndar en að okkar mati hefur samt vel til tekist. Að lokum viljum við þakka greinarhöfundum fyrir góðar greinar því það er ómetanlegt fyrir blaðið að hafa aðgang að fólki sem segir já þegar það er beðið um að skrifa í blaðið. Janúar 2019, Benóní Torfi Eggertsson, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Herbert Baldursson og Kjartan Arnfinnsson. FYLGT ÚR HLAÐI

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.