FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 5

FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 5
5FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 Annað stórt hagsmunamál eru tímafrestir við skattskil. Stjórn félagsins mun áfram halda góðum samskiptum við ríkisskatt- stjóra og funda með honum til gæta hagsmuna félagsmanna. Ljóst er að sífellt styttri skilafrestir eru að gera félagsmönn- um erfitt fyrir að standa við skil á réttum tíma. Hugmyndir hafa komið upp hvort hægt sé að minnka skattframtalsformið hjá lögaðilum, þannig að það miði meira við að leiða fram tekjuskattsstofn, en virð- isaukaskatts afstemmingum verði komið fyrir með öðrum hætti. Þá þarf jafnframt að skoða hvort félagsmönnum verði gert kleift að dreifa skattskilum lögaðila yfir allt árið eða skil á smærri lögaðilum verði heimiluð lengur fram eftir hausti. Unnið verður áfram með embættinu að framtíðarskipan þeirra mála og leitað lausna svo við verði unað. Fyrirhugaðir eru frekari fundir með stjórnendum háskól- anna um tilhögun náms fyrir fag okkar. Við viljum halda góðu sambandi við háskóla- samfélagið til að stuðla að góðri menntun og auka áhuga nemenda á starfi okkar. Stjórn FLE 2018-2019 frá vinstri: Anna Kristín, Ágúst, Bryndís, Arnar Már og Sif. FLE veitti styrk úr Rannsókna- og Námsstyrkjasjóði.

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.