FLE blaðið - 01.01.2019, Page 6
6 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
Alþjóðlegt samstarf hefur verið meira og viðburðarríkara en oft áður. Nú
hefur undirritaður gengt forsæti Norræna endurskoðunarsambandsins (NRF)
í eitt ár og hefur það verið viðburðarríkt. Þar má helst nefna að nýr fram-
kvæmdastjóri tók við um áramótin. Jens Röder sem hefur gegnt stöðunni
tæp tíu ár lét af störfum fyrir aldurssakir. Hann kom hér og talaði oftar en
einu sinni á ráðstefnum hjá okkur á þessu tímabili. Ráðning á nýjum fram-
kvæmdastjóra tók drjúgan tíma og hóf Helene Agélii, sem kemur frá Svíþjóð
störf hjá NRF nú í ársbyrjun.
Margrét Pétursdóttir var kosin í stjórn alþjóða endurskoðunarsambandsins,
IFAC núna í nóvember til þriggja ára sem fulltrúi NRF. Það er stór áfangi
og heiður fyrir félagið okkar að eiga í fyrsta skipti fulltrúa í stjórn IFAC.
Þá mun NRF eignast fulltrúa í alþjóðlega staðlaráðinu, Norðmanninn Kai
Morten Hagen. Það mun styrkja okkur í að sækja
áfram fram með endurskoðun minni og meðal-
stórra félaga. Einnig er má geta þess að á aðal-
fundi Accountancy Europe (áður FEE) í desem-
ber síðast liðnum þá hlaut Nina Rafen kosningu
sem fulltrúi NRF, en hún er fyrrverandi formaður
Norska endurskoðendasambandsins (DnR).
Okkur hefur tekist að gera okkur gildandi innan
NRF og þar gengur samstarfið vel, sem gerir
okkur ennþá sterkari í alþjóðlegu umhverfi með
nánu samstarfi með frændum okkar á hinum
Norðurlöndunum. Við fórum í velheppnaða ferð
til Brussel í lok september, sem var blanda af
skemmtun, fróðleik og alvöru. Er það samdóma
álit fólks að ferðin hafi tekist vel í alla staði. Allir
höfðu gaman og gagn af og þar sýndi sig vel hvað
kraftur og samheldni félagsmanna getur verið
mikil þegar við komum saman.
Eins og áður hefur fjöldi félagsmanna komið að
starfsemi FLE með einum eða öðrum hætti í
fastanefndum, stjórnum eða öðrum vinnuhópum
og tekið þátt í að gera félagið að því sem það er
í dag. Vill stjórn þakka öllum þessum aðilum fyrir
framlag þeirra á starfsárinu. Þá vill stjórn einnig
færa starfsmönnum félagsins þeim Sigurði og
Hrafnhildi bestu þakkir fyrir gott samstarf á árinu
sem og undanfarin ár. Að lokum vil ég þakka
meðstjórnarmönnum fyrir gott og árangursríkt
samstarf á árinu og hlakka ég til að takast á við
krefjandi verkefni á komandi starfsári.
H. Ágúst Jóhannesson
Skattadagurinn 2018.
Formaður tekur á móti nýjum félagsmönnum.