FLE blaðið - 01.01.2019, Page 7
7FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
Hádegisfundum fer fækkandi.
VIÐBURÐIR
Félagið stóð fyrir samtals 19 viðburðum á starfsárinu sem gáfu
um 50 endurmenntunareiningar. Árið á undan stóð félagið aftur
á móti fyrir 22 viðburðum sem veittu 45 endurmenntunarein-
ingar. Heildarmæting á þessa viðburði var tæplega 1200 manns
samanborið við rúmlega 1300 árið áður. Á síðast liðnum fimm
árum hefur félagið staðið fyrir á bilinu 19-25 viðburðum árlega.
Árlegar endurmenntunareiningar hafa aftur á móti verið á svipuð-
um nótum á þessu fimm ára tímabili, eða í kringum 50 einingar.
Árleg mæting hefur aftur á móti farið minnkandi á þessu árabili
eða frá um 1.500 niður í tæplega 1.200 á liðnu starfsári, eins og
áður segir. Að stærstum hluta skýrist þessi fækkun á niðurfell-
ingu hádegisverðafundanna fyrir um 2 árum síðan.
Námskeið, fræðslufundir og aðrir atburðir voru nánast með
sömu mætingu og árið áður. Þar skoruðu hæst námskeið um
ný persónuverndarlög og áhrif þeirra á störf endurskoðenda.
Haldin voru fjögur morgunkorn og var mætingin örlítið minni en
árið áður. Það morgunkorn sem vakti hvað mestan áhuga félags-
manna bar yfirskriftina „Tæknileg tímamót“ þar sem fjallað var
PUNKTAR ÚR STARFSEMI FLE
Sigurður B. Arnþórsson er framkvæmdastjóri FLE
Á síðastliðnum 6 árum hefur fjöldi félagsmanna nánast
staðið í stað eða liðlega 380 endurskoðendur, þrátt fyrir
að á sama tímabili hafi útskrifast um 50 endurskoðendur