FLE blaðið - 01.01.2019, Side 9
9FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
STAÐA STÉTTARINNAR
Mörg undanfarin ár hefur mér verið tíðrætt um þróun mála hvað
varðar fjölgun og endurnýjun í stéttinni. Á síðastliðnum 6 árum
hefur fjöldi félagsmanna nánast staðið í stað eða liðlega 380
endurskoðendur, þrátt fyrir að á sama tímabili hafi útskrifast um
50 endurskoðendur. Þegar best lét á þessu 6 ára tímabili þá störf-
uðu um 260 þeirra hjá endurskoðunarfyrirtæki en er nú komið
niður í 239 á liðnu starfsári sem er það lægsta sem við höfum
séð á umræddu tímabili.
Ef við skoðum nánar þessa 239 sem störfuðu hjá endur-
skoðunarfyrirtæki í lok ágúst síðast liðinn kemur í ljós að 55 þeirra
eða 23% eru eldri en 60 ára og það sem meira er, að um 2/3
þeirra er 65 ára eða eldri. Það liggur því nokkuð ljóst fyrir að ef
ekki verður frekari fjölgun í stéttinni umfram það sem hefur verið
undanfarin 6 ár að þá mun fækka í hópi þeirra sem starfa við
endurskoðun á komandi árum. Menn geta svo spurt sig hvort
það sé bara ekki allt í lagi, við höfum þá alla vega nóg að gera og
aukin tæknivæðing í störfum okkar sem boðuð er hljóti að hjálpa
okkur sem eftir sitjum.
Mín skoðun er aftur á móti sú að til framtíðar verði aukin eftir-
spurn eftir okkar verðmætu reynslu og menntun til annarra starfa
en hefðbundinnar endurskoðunar og því sé það umhugsunarefni
fyrir félagið og okkur öll með hvaða hætti við getum laðað til
okkar ungt og efnilegt fólk til starfa sem endurskoðendur.
MIKILVÆGUSTU MÁLEFNIN
Það má segja að á liðnu starfsári þá hafi þrjú málefni borið einna
hæst fyrir utan venjubundin verkefni og tekið mikinn tíma á vett-
vangi félagsins en þau eru:
• Innleiðing Evróputilskipunar í endurskoðun
• Innleiðingu persónuverndarstefnu FLE á grundvelli laga um
persónuvernd nr. 90/2018
• Ferð félagsmanna til Brussel
Innleiðing Evróputilskipunar um endurskoðun hefur verið til
skoðunar allt frá því á árinu 2014 þegar Atvinnuvegaráðuneytið
óskaði eftir því við félagið að það tæki þátt í vinnuhóp sem hefði
það að markmiði að móta ný lög um endurskoðun og endurskoð-
endur. Á sama ári skipaði stjórn félagsins ráðgjafahóp sem var
ætlað að móta helstu áhersluatriði félagsins og vera til halds og
trausts fyrir félagið. Vinna hópsins sem ráðuneytið skipaði hefur
tekið mun lengri tíma en nokkrum gat órað fyrir og má segja að
tíðar kosningar á síðast liðnum 4 árum og tilheyrandi áhrif þeirra
á ráðuneytið hafi ekki bætt úr skák. En frumvarp liggur nú loksins
fyrir og töluverðar breytingar á starfsumhverfi framundan, jafnvel
meiri en við höfum séð í langan tíma og munu hafa mikil áhrif á
störf okkar og ekki síður hlutverk félagsins til framtíðar.
Unnið hefur verið að Persónuverndarstefnu FLE á starfsárinu.
Félagið leitaði til sérfræðinga á þessu sviði til að uppfylla ákvæði
laga sem og í þeim tilgangi að stefna FLE í formi persónu-
verndaryfirlýsingar lægi fyrir og væri öllum kunnug. Þar kemur
m.a. fram hvernig félagið vistar upplýsingar, hvaða upplýsingum
við þurfum, í hvaða tilgangi sem og öryggi persónuupplýsinga og
síðast en ekki síst hvaða réttindi félagsmaður á varðandi þessar
upplýsingar. Vinna þessi er á lokastigum og gerum við ráð fyrir
að kynna stefnuna nánar fyrir félagsmönnum í byrjun árs. Þá ber
þess að geta að vinna og framsetning stefnunnar hefur tekið mið
af því að einstaka endurskoðunarfyrirtæki gætu nýtt sér þá vinnu
í framhaldinu með því að yfirfæra stefnu félagsins og aðlaga að
sínu fyrirtæki til að uppfylla ákvæði laganna.
BRUSSEL FERÐ
Ferð á vegum félagsins var farin til Brussel í lok september og
ekki hægt að segja annað en að hún að hafa tekist með eindæm-
um vel. En að baki slíkri ferð liggur mikil undirbúningsvinna
og nær hún alveg aftur til vorsins 2015 þegar stjórnin skipaði
ferðanefnd til að kanna áhuga félagsmanna fyrir utanlandsferð og
hvert skyldi halda. Gerð var könnun þá um vorið og settir upp val-
kostir þar sem Brussel hafði vinninginn. Var þá unnið út frá því og
Fyrirlestur í Brussel.