FLE blaðið - 01.01.2019, Page 11

FLE blaðið - 01.01.2019, Page 11
11FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 ÓFJÁRHAGSLEG UPPLÝSINGAGJÖF Helga Harðardóttir meðeigandi hjá KPMG ehf. og Viktoría Valdimarsdóttir meðeigandi Ábyrgra Lausna ehf. KPMG og Ábyrgar Lausnir eru í samstarfi við að veita þjónustu um sjálfbærni. Ófjárhagslegir þættir sem hluti af framtíðar stefnumótun geta skipt sköpum um möguleg ný markaðstækifæri, nýsköpun og verðmætasköpun Áherslur og upplýsingagjöf fyrirtækja hafa breyst með inn- leiðingu á tilskipunum Evrópusambandsins um birtingu ófjár- haglegra upplýsinga, breyttum áherslum í stjórnarháttum sem og væntingum hagaðila. Í ársskýrslum fyrirtækja eða í sérstök- um samfélagsskýrslum er nú í ríkara mæli fjallað um þætti er lúta að umhverfi, samfélagi, stjórnarháttum og viðskiptalíkani. Félög eru undir vökulum augum fjárfesta og annarra, ekki aðeins um það hvernig félögum hefur vegnað rekstrarlega heldur einnig hvernig og hverju þau hafa áorkað til samfélags- ins og hvort þau hafa lágmarkað neikvæð áhrif á umhverfið. Hefðbundin skýrslugjöf um fjárhagslega þætti uppfyllir ekki lengur þarfir notenda. FORSAGA KRAFNA UM BIRTINGU ÓFJÁRHAGSLEGRA UPPLÝSINGA Í tilskipun Evrópusambandsins 2013/34/EU um ársreikninga, samstæðureikninga og tengdar skýrslur félaga1 er fjallað um kröfur um ófjárhagslegar upplýsingar. Þar segir m.a. að í skýr- slu stjórnar eigi ekki aðeins að fjalla um fjárhagslegar upplýs- ingar heldur eigi einnig að vera greining á umhverfis- og sam- félagslegum þáttum sem nauðsynlegir eru fyrir félagið til að dafna og þróast. Með tilskipun 2014/95/EU2, sem er uppfærsla á áðurnefndri tilskipun, eru settar fram kröfur um aðra ófjárhagslega upplýs- ingagjöf sem felast í birtingu upplýsinga um áhrif starfseminn- ar á samfélags- og umhverfisþætti. 1. „e: on the annual financial statements, consolidated financial statements and related report of certain types of undertakings“ 2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A32014L0095" https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ TXT/?uri=CELEX%3A32014L0095 7 e. amending Directive 2013/34/EU as regards disclosure of non-financial and dversity information by certain lage undertakings and groups

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.