FLE blaðið - 01.01.2019, Side 12

FLE blaðið - 01.01.2019, Side 12
12 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 Sú tilskipun var grunnur að breytingum á lögum um ársreikn- inga er varðar samræmda og samfellda skýrslugjöf um umhverfismál, samfélagslega ábyrgð og stjórnarhætti (e. Environmental, Social and Governance issues - ESG). Sambandið telur að þessi tilskipun hafi bein áhrif á um 6.000 skráð félög í Evrópu. ÍSLENSKAR KRÖFUR OG INNLEIÐING TILSKIPUNAR Í framhaldi af tilskipun 2014/95/EU var 66. gr. d innleidd í lög um ársreikninga árið 2016 og hljóðar svo3; „Félag sem fellur undir 9. tölul. og d-lið 11. tölul. 2. gr. og móður félög stórra samstæðna skulu láta fylgja í yfirliti með skýrslu stjórnar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, félags- og starfsmannamál. Jafnframt skal gera grein fyrir stefnu félagsins í mannréttindamálum og hvernig félagið spornar við spillingar- og mútumálum. Yfirlitið skal enn fremur innihalda eftirfarandi: a. stutta lýsingu á viðskiptalíkani félagsins, b. lýsingu á stefnu félagsins í tengslum við mál samkvæmt þessari grein, ásamt lýsingu á því hvaða áreiðanleika- könnunarferli félagið framfylgir, c. yfirlit yfir árangur af stefnu félagsins í málum samkvæmt þessari grein, d. lýsingu á megináhættum sem tengjast þessum málum í rekstri félagsins, þ.m.t., eftir því sem við á og í réttu hlutfalli, um viðskiptatengsl þess, vörur eða þjónustu, sem líkleg eru til að hafa skaðleg áhrif á þessum sviðum, og hvernig félagið tekst á við þá áhættu, og e. ófjárhagslega lykilmælikvarða sem eru viðeigandi fyrir viðkomandi fyrirtæki. Ef félagið hefur ekki stefnu í tengslum við eitt eða fleiri mál samkvæmt þessari grein skal gera skýra og rökstudda grein fyrir því í yfirlitinu. Í yfirlitinu skv. 1. mgr. skulu einnig, þar sem við á, koma fram frekari skýringar varðandi upphæðir sem greint er frá í ársreikn- ingi. Þegar félag sem um ræðir í 1. mgr. gerir samstæðureikning er nægilegt að upplýsingar skv. 1.–2. mgr. nái eingöngu til sam- stæðunnar. Dótturfélag er undanþegið upplýsingagjöf skv. 1.–3. mgr. ef 4. mgr. á við.“ Ljóst er að ýtarlegar kröfur eru gerðar um upplýsingar sam- kvæmt lagaákvæðinu. Í fyrsta málsliðnum eru það raunar 12 atriði sem fjalla á um en þau eru; Í b. lið segir að gefa eigi lýsingu á stefnu félagsins í tengslum við mál samkvæmt greininni ásamt lýsingu á því áreiðanleika- könnunarferli sem félagið fylgir. Þau mál sem nefnd eru í grein- inni eru; • umhverfismál • félagsmál • starfsmannamál • mannréttindamál • spillingarmál • mútumál Í c. og d. lið er kveðið á um að veita eigi upplýsingar um árangur ofangreindra stefna ásamt lýsingu á megináhættum tengdum ofangreindum málum. Samandregið má gera ráð fyrir að veita þurfi upplýsingar um alls 24 atriði, sem sjá má í eftirfarandi töflu; Einnig ber að gera stutta lýsingu á viðskiptalíkani og veita upp- lýsingar um ófjárhaglega lykilmælikvarða sem eru viðeigandi fyrir félagið. Ljóst er að upplýsingagjöf getur verið yfirgripsmikil og því er mikilvægt að stjórnendur móti skýra stefnu varðandi sjálfbærni. HVAÐA FÉLÖGUM BER AÐ BIRTA ÓFJÁRHAGSLEGAR UPPLÝSINGAR Félög sem eru skilgreind sem einingar tengdar almannahags- munum samkvæmt 9. tl. 2. gr. ársreikningalaga4 og móðurfé- lög5 ef samstæða við uppgjörsdag fer yfir mörkin á a.m.k. tveimur af þremur eftirfarandi viðmiðunum: 6. heildareignum: 3.000.000.000 kr. 7. hreinni veltu: 6.000.000.000 kr. 8. meðalfjölda ársverka á fjárhagsárinu: 250 Þróun Umfang Staða Áhrif Umhverfismál v v v v Félagsmál v v v v Starfsmannamál v v v v Lýsing á stefnu Lýsing á áreiðan- leika- -könnun Árangur Megin- áhættur Umhverfismál v v v v Félagsmál v v v v Starfsmannamál v v v v Mannréttindamál v v v v Spillingarmál v v v v Mútumál v v v v 3. https://www.althingi.is/lagas/148c/2006003.html 4. https://www.althingi.is/lagas/148c/2006003.html 5. https://www.althingi.is/lagas/148c/2006003.html d liður, 11. tl. 2. gr.

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.