FLE blaðið - 01.01.2019, Page 21
21FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
þessa verða gerðar breytingar á eftirliti með endurskoðendum
og endurskoðunarfyrirtækjum sem endurskoða einingar tengd-
ar almannahagsmunum.
ANNAÐ OG MINNA
Engin ákvæði eru í nefndu frumvarpi um Félag löggiltra endur-
skoðenda eins og í 12. og 13. gr. gildandi laga nr. 79/2008 um
endurskoðendur, þar sem kveðið er meðal annars á um að
endurskoðendum sé skylt að fara eftir siðareglum félagsins.
Samkvæmt því verður ekki lengur um skylduaðild endurskoð-
enda að félaginu að ræða og spurningar vakna, eins og fram
kemur í innsendri umsögn um frumvarpsdrögin, eftir hvaða
siðareglum á að fara. Það skortir nánari skilgreiningu í frum-
varpið varðandi það. Við þessar breytingar vaknar einnig spurn-
ing um hvort og þá hvaða áhrif þær komi til með að hafa á
félagið og starfsemi þess í framtíðinni.
Hér að framan hefur verið stiklað á stóru varðandi fyrirhugaðar
breytingar á lögum um endurskoðendur og endurskoðun. Ekki
er um tæmandi umfjöllun á öllum breytingum sem fram koma
í fyrirliggjandi frumvarpi og sumt breytist efnislega lítið eða
ekkert ef frá er talin aðkoma Fjármálaeftirlitsins í stað endur-
skoðendaráðs. Í því sambandi má nefna ákvæðið um endur-
menntun, próf og prófnefnd, starfsábyrgðartryggingu o.fl.
Þeir sem vilja kynna sér málið nánar er bent á frumvarpið og
greinargerð með því, sem lagt hefur verið fram á Alþingis:
HYPERLINK “https://www.althingi.is/altext/149/s/0365.html”
https://www.althingi.is/altext/149/s/0365.html athugasemd-
ir FLE við frumvarpið: https://www.althingi.is/altext /
erindi/149/149-719.pdf
Samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi er út frá því gengið að ný
lög um endurskoðendur og endurskoðun öðlist gildi 1. janúar
2020.
Ragnar Jóhann Jónsson
ÚR FÉLAGSLÍFINU
BrusselferðFrá haustráðstefnu í október
Mikill áhugi í gangiÞórdís Kolbrún ráðherra ANR ásamt nýjum löggiltum
endurskoðendum