FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 26

FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 26
26 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 ÍSLAND – HVAÐ VAR SAGT UM ENDURSKOÐENDUR Á ÍSLANDI? Á Íslandi var sett á stofn Rannsóknarnefnd Alþingis til að fara yfir aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Þessi viðbrögð voru einstök í allri Evrópu en voru nauðsynleg fyrir okkur Íslendinga til að skilja hvað gerðist. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis er einn kafli þar sem fjallað er um endurskoðendur og störf þeirra, einkum er varðar endurskoðun á reikningsskilum fjármálafyrirtækjanna í aðdraganda hrunsins. Þar setur nefndin fram gagnrýni sína um störf endurskoðenda og skyldur þeirra og leggur til að störf endurskoðenda séu skoðuð. Þingmannanefnd sem var skipuð til að fjalla um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis tók gagn- rýni Rannsóknarnefndarinnar upp í sínu áliti og lagði einnig til að farið yrði í ítarlega úttekt á störfum ytri endurskoðenda fram að hruni bankanna. En við sem vinnum við endurskoðun, finnum vel fyrir þessum breytingum og auknu kröfum sem orðið hafa í störfum okkar á síðustu tíu árum ENDURSKOÐUN BREYTINGAR OG UMBÆTUR Í KJÖLFAR HRUNSINS Herbert Baldursson og Íris Ólafsdóttir, endurskoðendur hjá PwC HRUNIÐ – þetta voðalega orð, sem merkir bara eitt – hrun stóru bankanna í október 2008 og skelfilegar afleiðingar þess á íslenska þjóðarsál og efnahagslíf. Nú, þegar tíu ár eru liðin frá þessum atburði er viðeigandi að líta til baka og skoða hvort og þá hvaða áhrif hrunið hefur haft á umhverfi og störf endurskoðenda. Hér er ekki ætlunin að vega og meta störf endurskoðenda í hruninu. Sá þáttur er auðvitað ekki hafinn yfir gagnrýni, en hann hefur verið skoðaður af Rannsóknarnefnd Alþingis og kannski öðrum. Hér ætlum við að fara stuttlega yfir hvað hefur breyst hjá okkur endurskoðendum í kjölfar hrunsins. Hvað sögðu og gerðu eftirlitsaðilar og reglusetningar- valdið og hverju breyttu þau yfirvöld í okkar starfsumhverfi. Það var ekki bara á Íslandi sem það varð hrun. Í Evrópusambandinu varð til dæmis það sem nefnt er „The CRISIS“, eða fjármálakrepp- an. Í þessari grein ætlum við einnig að skoða hvaða áhrif fjármálakreppan hafði á endurskoðun og endurskoðendur í ESB, því það er jú þannig að allt sem gerist innan ESB mun á endanum skila sér til Íslands og breyta lífi okkar. Óhætt er að segja að í eftirmála hrunsins var athyglin á endurskoðendur í raun tiltölulega lítil, bæði hér heima sem og innan ESB. Fyrst og fremst var einblínt á fjármálakerfið og hvernig mætti gera umbætur á því. Þá erum við að tala um reglusetningarvaldið og eftirlitsað- ila. Álit almennings á endurskoðendum, eins og fleirum, beið hins vegar hnekki.

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.