FLE blaðið - 01.01.2019, Qupperneq 37
37FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
• annarra en atvinnufyrirtækja sem hafa ekki heimilisfesti, lög-
heimili, varanlega búsetu eða dveljast ekki að jafnaði hér á
landi. Þjónustan telst þó ávallt veitt hér á landi þegar raun-
veruleg nýting hennar á sér stað hérlendis.
Sú þjónusta sem fellur undir skattskylduna eftir breytinguna er
sama þjónusta og hefur verið hingað til talin upp í 10. tölul. 1.
mgr. 12. gr. vskl. auk útvarps og sjónvarpsþjónustu. Auk þess
er frekari skýring á því hvað telst rafræn þjónusta og fjarskipta-
þjónusta.
Meginreglan verður því sú að þjónustan telst vera nýtt og þar
með skattlögð þar sem kaupandi þjónustunnar hefur
búsetu eða starfsstöð. Sá staður þar sem þjónustan er veitt
(e. place of supply of services) telst þá vera sá staður þar sem
hún er nýtt. Af þessu leiðir að virðisaukaskatturinn verður
„hlutlaus“ í milliríkjaviðskiptum. Meðal annars var haft að
leiðarljósi við gerð frumvarpsins að fyrirbyggja að fyrirtæki,
einstaklingar og aðrir aðilar verði tvískattlagðir eða ekki skatt-
lagðir í milliríkjaviðskiptum vegna mismunandi regluverks milli
landa.
Vegna þessa er umrædd þjónusta sem seld er úr landi almennt
án virðisaukaskatts – án tillits til þess hvar hagsmunir kaupanda
liggja. Eftirfarandi dæmi eru lýsandi um stöðuna eftir framan-
greindar breytingar:
Dæmi 1:
Íslensk lögfræðistofa selur dönsku fyrirtæki lögfræðiþjónustu.
Um er að ræða þjónustu er varðar kröfur danska fyrirtækisins
hér á landi gagnvart innlendum aðilum. Danska fyrirtækið er
einn aðili og ekki hluti af fyrirtækjasamstæðu. Kaupandi hefur
engin önnur tengsl við landið. Þjónusta íslensku lögfræðistof-
unnar telst vera veitt í Danmörku og er ekki skattskyld hér á
landi. Sá staður þar sem þjónustan telst vera veitt er þá í
Danmörku.
Dæmi 2:
Íslenskt ráðgjafarfyrirtæki selur breskri fyrirtækjasamsteypu
ráðgjafarþjónustu. Breska móðurfélagið á dótturfyrirtæki á
Írlandi og í Lúxemborg. Ráðgjöfin varðar samningagerð írska
dótturfélagsins við íslenskt fyrirtæki. Írska dótturfélagið hefur
engin önnur tengsl við landið. Þjónusta íslenska ráðgjafar-fyrir-
tækisins telst vera veitt á Írlandi og er því ekki skattskyld hér á
landi. Skattlagningarstaður þjónustunnar er þá á Írlandi.
b) Innflutt þjónusta - Greiðsluskylda
Með lögum nr. 59/2018 verður öll innflutt þjónusta sem fellur
undir skattskyldusvið virðisaukaskattslaganna skattskyld hér á
landi, þó þannig að skattskylda gagnvart einstaklingum nær
einungis til innfluttrar þjónustu skv. 10. tölul. 1. mgr. 12. gr.
vskl. Meginreglan er sú að kaupanda ber að skila skattinum á
gjalddaga almennra uppgjörstímabila.
Með úrskurði yfirskattanefndar í máli nr. 159/2015 var m.a.
komist að þeirri niðurstöðu að fjármálafyrirtæki sem keypti
þjónustu veitta rafrænt erlendis frá væri ekki skilaskylt vegna
kaupa á slíkri þjónustu hér á landi þar sem skyldan til að skila
virðisaukaskatti lægi alfarið hjá erlendum seljanda þjónustunn-
ar, en hann hafði ekki sinnt þessari skyldu sinni. Í nýju lögunum
er m.a. brugðist við þessari niðurstöðu með því að leggja til að
undanþegnir aðilar verði ávallt skilaskyldir af allri aðkeyptri þjón-
ustu erlendis frá, sem fellur undir skattskyldusvið laganna, en
ekki hin erlendu atvinnufyrirtæki. Um er að ræða öfuga skila-
skyldu virðisaukaskatts (e. reverse charge mechanism), þ.e.
kaupanda þjónustunnar ber skylda til þess að skila í ríkissjóð
virðisaukaskatti af aðkeyptri þjónustu erlendis frá en ekki selj-
anda þjónustunnar.
Þrátt fyrir framangreint eru eftirfarandi undantekningar frá
greiðsluskyldu:
• Ef kaupanda væri heimilt að telja virðisaukaskattinn til
innskatts samkvæmt ákvæðum virðisaukaskattslaganna;
fellur skilaskylda niður.
• Ef kaupandi er einstaklingur, aðili sem stundar ekki atvinnu-
rekstur eða starfsemi í hagnaðarskyni og andvirði þjónustu
skv. 10. tölul. 1. mgr. 12. gr. vskl. nemur allt að 10.000 kr.
án vsk. á hverju uppgjörstímabili. Kaup á rafrænni þjónustu,
fjarskiptaþjónustu eða útvarps- og sjónvarpsþjónustu fellur
ekki undir undantekninguna.
• Ef erlenda atvinnufyrirtækið, umboðsmaður þess eða
annar aðili sem er í fyrirsvari fyrir það er skráður á grunn-
skrá virðisaukaskatts vegna starfsemi þess hér á landi.
c) Rafræn þjónusta, fjarskiptaþjónusta eða
útvarps-og sjónvarpsþjónusta
Þrátt fyrir að meginreglan varðandi innflutning þjónustu sé
svokölluð öfug skilaskylda virðisaukaskatts (e. reverse charge
mechanism), þ.e. kaupandi þjónustunnar skilar skattinum, þá er
ein undantekning frá þeirri meginreglu. Þannig ber atvinnufyrir-
tæknum sem eru með heimilisfesti og fasta starfsstöð erlendis
og selja eftiralda þjónustu til Íslands: rafræna þjónustu, fjar-
skiptaþjónustu eða útvarps- og sjónvarpsþjónustu, að inn-
heimta og skila skattinum hér á landi. Ákvæðið á við um sölu á
þessari þjónustu til annarra en atvinnufyrirtækja. Sama skylda
hvílir á umboðsmanni eða öðrum fyrirsvarmönnum hins
erlenda fyrirtækis sem selur umrædda þjónustu til Íslands.
LOKAORÐ
Í þessari örgrein hefur verið stiklað á helstu atriðum sem
breyttust nú í byrjun ársins hvað varðar virðisaukaskatt af þjón-
ustuviðskiptum milli landa. Breytingarnar eru til mikilla bóta
enda reglur gerðar mun einfaldari fyrir fyrirtæki. Auk þess ætti
með breytingunum að vera komið í veg fyrir skattleysi varðandi
innflutning á rafrænni þjónustu, fjarskipta- útvarps- og sjón-
varpsþjónustu.
Vala Valtýsdóttir