FLE blaðið - 01.01.2021, Blaðsíða 27
27FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021
Báðir fengum við nafni bókfærslubikarinn við útskrift og var því
nafnið okkar grafið á bikarinn tvö ár í röð. Þeir sem ekki þekkja
til gætu haldið að þessi Guðmundur Rúnar Óskarsson væri
bókhaldsnörd sem fallið hafi á lokaprófi og þurft að fara aftur
í annan bekk, en verið með svona sérgáfu í bókhaldsfræðum.
Næsta sem gerist er að ég fæ löggildingu sem endurskoðandi
og nafni þremur árum seinna. Þá heldur þessi misskilningur
áfram. Endurskoðendur þurftu, allt til ársins 2000, að færa
allar upplýsingar sjálfir inn á framtöl umbjóðanda sinna. Þá
gerðist það iðulega að menn hringdu í mig og byrjuðu að telja
upp innistæður sínar á bankareikningum og vaxtatekjurnar af
þeim, því það vantaði þessar upplýsingar til að klára framtalið
þeirra. Ég reyndi að fara fínt í að finna út hver viðmælandinn
væri, ef ég áttaði mig ekki á honum, þar til ég áttaði mig á að
viðmælandinn var að tala við „vitlausan“ Guðmund og sagði
viðmælandanum það. Oft brá mönnum við eftir að hafa þulið
upp fyrir ókunnum manni bankainnistæður sínar, sem viðkom-
andi sagði ekki einu sinni maka sínum frá hverjar væru, og urðu
heldur vandræðalegir. Svona símhringingar voru margar þar
sem okkur var ruglað saman og menn að ræða við „vitlausan“
Guðmund um sín málefni. Ég hafði bara gaman af þessum
uppákomum, leiðrétti misskilninginn við viðmælandann, gaf
honum upp símanúmerið hjá nafna og bað um kveðju til hans.
Við nafni reyndum að slá á þennan misskilning og sömdum
okkar á milli um að ég hætti að nota Rúnars nafnið eða R-ið
í mínu nafni en hann að halda sér við R-ið eða Rúnars nafnið.
Það hafði örugglega eitthvað að segja en var fjarri því að koma
í veg fyrir áframhaldandi misskilning.
Svo voru það jólakortin. Í mörg ár fékk hann jólakort sem
ég átti að fá, jafnvel frá náskyldum frænda mínum og vini,
en ég fékk jólakort ætluð honum. Það var nokkuð skondið
þegar ég –KR-ingur af betri gerðinni- var að fá jólakort frá
Knattspyrnufélaginu Víkingi með hugheilum (ekki hughálfum)
óskum um gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár auk þess sem mér
var þakkað fyrir samstarfið og vel unnin störf á árinu. Það kom
fyrir að við skiptumst á jólakortum, sem send höfðu verið á
rangt heimilisfang, þegar við hittumst á skattadegi FLE.
Þrátt fyrir að nafni minn sé látinn heldur misskilningurinn enn
áfram. Skáfrænka mín ein hringdi í Þórð bróður minn fyrir
stuttu og vottaði honum samúð sína vegna fráfalls Guðmundar
bróður hans. Vinur minn og skólabróðir frá Bifröst, Ögmundur
sem býr á Spáni, hringdi í mig fyrir stuttu og var alltaf að tala
um við mig hvað hann væri ánægður með að heyra í mér og
heyra röddina mína. Ég afgreiddi þetta tal hans bara með því að
líklegast væri Ögmundur kominn í glas og orðinn meyr og tilf-
inninganæmur, þar til ég fattaði að hann var að hringja í mig til
að kanna hvort ég væri á lífi. Hann hafði þá fengið hringingu frá
skólabróður okkar í Noregi, Auðunni, sem hélt því fram, statt
og stöðugt, að ég væri látinn.
Nú er bara vita hvort misskilningurinn nær út yfir gröf og
dauða. Verður það ef til vill þannig að þegar ég banka upp á
Gullna hliðið, hjá Lykla Pétri - en eins og allir vita að þá fara
endurskoðendur til himna - að þá fer hann í bókhaldið hjá sér
og segir:
Látum okkur nú sjá, heitir Guðmundur Rúnar Óskarsson, vann
í Ísbirninum, var á Samvinnuskólanum á Bifröst, fékk bókhalds-
bikarinn, fékk löggildingu sem endurskoðandi og starfaði fyrir
íþróttafélag. Nei góði minn þessi maður hefur þegar skráð sig
inn í himnaríki. Þú ert að villa á þér heimildir og átt heima í
neðra.
Og þar verð ég að dúsa þar til misskilningurinn verður leið-
réttur, innan um suma gömlu kúnnanna sem alltaf voru að biðja
mig um að aðstoða sig við að svindla á skattinum. Úff.
Hafnarfirði, 9. september 2020.
Guðmundur Rúnar Óskarsson
Guðmundur R. Óskarsson féll frá
í ágúst 2020.