FLE blaðið - 01.01.2021, Blaðsíða 29
29FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021
Samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra
gjalda, er því líkt og áður skylt að halda eftir og skila í ríkissjóð
staðgreiðslu af arði sem greiddur er til erlendra aðila, þ.m.t. lög-
aðila innan EES.
Í 9. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003 er svo kveðið á um frádráttar-
bærni fjárhæða sem hlutafélög, og önnur tilgreind félagaform,
hafa fengið greiddar í arð. Með hliðsjón af skuldbindingum
íslenska ríkisins samkvæmt samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið er þar jafnframt kveðið á um að sama frádráttar-
bærni eigi við um fjárhæðir sem félög í sömu félagaformum
sem skattskyld eru skv. 7. tölul. 3. gr. og eru heimilisföst í öðru
aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu, aðildarríki stofnsamn-
ings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum hafa fengið
greiddar í arð.
Á þessum grundvelli hafa erlendir lögaðilar innan EES getað
fengið endurgreiddan afdráttarskatt sem haldið hefur verið eftir
af arðgreiðslum á grundvelli laga nr. 45/1987 með því að skila
skattframtali á næsta gjaldári og færa þar til frádráttar fenginn
arð samkvæmt 9. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003. Sem dæmi um
þetta mætti nefna nýlegan dóm Hæstaréttar í máli nr. 2/2020,
en upphaf þess máls má rekja til þess að Iceland Seafood
International hf. (ISI) greiddi út arð til hluthafans Iceland
Seafood Holdings SARL (ISH) sem staðsett var í Lúxemborg. Í
samræmi við heimild í 10. gr. tvísköttunarsamnings á milli
Íslands og Lúxemborgar hélt ISI eftir og skilaði afdráttarskatti
sem nam 5% af arðgreiðslunni og í kjölfarið skilaði ISH skatt-
framtali á Íslandi og óskaði eftir endurgreiðslu afdráttarskattsins
á grundvelli frádráttarheimildarinnar. Óumdeilt var í málinu að
félagi í Lúxemborg væri heimilt að nýta sér heimild 9. tölul. 31.
gr. laga nr. 90/2003 um frádrátt og endurgreiðslu á afdreginni
staðgreiðslu af arði en niðurstaða dóms Hæstaréttar var sú að
hafna endurgreiðslunni á grundvelli þess að arðsúthlutunin frá
ISI hefði verið ólögmæt.
Með þessu hefur verið leitast við að gæta þess að ekki skatta-
lögin mismuni ekki hluthöfum eftir því hvort þeir eru staðsettir
á Íslandi eða í öðrum aðildarríkjum innan EES. Það má hins
vegar ljóst vera að það getur skipt verulegu máli hvort aðilar
þurfi að sæta því að haldið sé eftir staðgreiðslu af arðgreiðslum.
ÓLÖGMÆT MISMUNUN
Með hliðsjón af ofangreindu er ljóst að hlutafélag sem fær
greiddan arð frá íslensku hlutafélagi eða einkahlutafélagi er ekki
í sömu stöðu eftir því hvort það er staðsett á Íslandi eða í öðru
aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins. Það er því með öðrum
orðum mismunur á stöðu þessara aðila sem byggir eingöngu á
ríkisfangi þeirra.
Samkvæmt 40. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið
skulu engin höft vera á milli samningsaðila á flutningum fjár-
magns né nokkur mismunun byggð á ríkisfangi eða búsetu
aðila eða því hvar féð er notað til fjárfestinga. Um samspil
ákvæðisins og íslenskra skattalaga var m.a. fjallað í dómi EFTA
dómstólsins máli nr. E-14/13 (ESA gegn Íslandi), en í stuttu máli
er það svo að þrátt fyrir að skattalög falli utan gildissviðs EES
samningsins ber aðildarríkjum samningsins engu að síður að
beita skattlagningarvaldi sínu þannig að það brjóti ekki í bága
við ákvæði samningsins. Það þýði m.ö.o. að aðildarríkin mega
ekki beita skattlagingarvaldi sínu með þeim hætti að aðilum sé
mismunað á grundvelli búsetu eða ríkisfangs nema slík mis-
munun teljist vera réttlætanleg.
Eins og fram kom í upphafi var tilefni lagabreytingarinnar í maí
2020 fyrst og fremst það óhagræði sem lögaðilar urðu fyrir við
það að staðgreiðslu væri haldið eftir af arði sem væri síðan í
raun ekki skattlagður með hliðsjón af frádráttarbærni slíkra arð-
greiðslna skv. 9. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003. Af framan-
greindu verður ekki annað séð en að nákvæmlega sömu sjónar-
mið eigi við um þá lögaðila innan EES sem njóta sömu frá-
dráttarbærni á grundvalli sama ákvæðis. Er því vandséð að það
geti verið réttlætanlegt að mismuna innlendum og erlendum
lögaðilum innan EES með þeim hætti sem núgildandi lög virð-
ast gera.
ER ÞÖRF Á LAGABREYTINGU?
Eins og að framan hefur verið rakið verður ekki annað séð en að
núgildandi lög um staðgreiðsluskyldu arðgreiðslna geti leitt til
mismununar sem brýtur í bága við 40. gr. EES samningsins.
Samkvæmt lögum nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið
hefur meginmál EES samningsins lagagildi hér á landi. Þá er
kveðið á um það í 3. gr. laganna að skýra skuli lög og reglur, að
svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES samninginn og
þær reglur sem á honum byggja.
Það mætti því hugsa sér að íslensk skattyfirvöld myndu túlka
ákvæði laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda til
samræmis við ákvæði 3. mgr. 4. gr. laga nr. 94/1996, 9. tölul.
31. gr. laga nr. 90/2003, lög nr. 2/1993 og 40. gr. EES samn-
ingsins. Íslensk skattyfirvöld hafa hins vegar almennt sýnt mikla
varfærni við slíkar lögskýringar og almennt litið svo á að það sé
frekar á valdsviði Alþingis að aðlaga íslensk lög að samnings-
skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES samningnum.
Verður því að telja líklegt að lagabreytingu þurfi til að aðlaga lög
nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda að þeim reglum
sem nú gilda um staðgreiðslu skatts af arði á milli innlendra
lögaðila samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 94/1996 um stað-
greiðslu opinberra gjalda þannig að sama undanþága frá stað-
greiðslu af arði taki til innlendra og erlendra hlutafélaga innan
EES. Að öðrum kosti gæti íslenska ríkið talist vera að brjóta
samningsskyldur sínar samkvæmt EES samningnum og eftir
atvikum bakað sér bótaskyldu gagnvart þeim aðilum sem verða
fyrir tjóni af þeim sökum.
Bjarni Þór Bjarnason