FLE blaðið - 01.01.2021, Blaðsíða 14

FLE blaðið - 01.01.2021, Blaðsíða 14
14 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021 hagslegar upplýsingar. Síðan er fjallað um það að skýringar er varða umhverfisþætti ættu að vera hefðbundnar skýringar allt eins og skýringarnar við fjárhagslegu þættina og sett fram atlaga að staðli um þá skýringargjöf og í því sambandi vísað til ákvæða í stöðlum allra hinna fimm staðlaráða sem að útgáfunni standa. Í útgáfunni er einnig gagnleg umræða um mikilvægi sem er nauðsynlegt að hafa í huga í allri þróun um reglur um upplýsingagjöf og mér hefur fundist skorta nokkuð. Það þurfa ekki öll fyrirtæki að skýra frá öllu og ekki viljum við enda með staðla um framsetningu ófjárhagslegra upplýsinga sem gera þannig kröfur um skýrslugerð að í þeim muni ekki sjá í skóg- inn fyrir trjánum. Að mínu viti er raunverulega hætta á því að ófjárhagsleg upplýsingagjöf fyrirtækja verði of ítarleg og ekki nægjanlega gerður greinarmunur á því sem er raunverulega mikilvægt og þess sem eingöngu er sett fram til að „tikka í GRI boxin“. EKKI HÆGT AÐ BÍÐA Þessi yfirferð mín hér að ofan spannar ekki nema brotabrota- brot af þeirri þróun sem er í gangi varðandi samræmda staðla um fjárhagslega upplýsingagjöf en að mínu mati eru þetta þeir stóru sem líklegir eru til að ná framgangi. Hvað nú mun gerast er óljóst en þrýstingurinn frá hagsmuna- aðilum er orðinn of mikill til þess að það gerist ekkert og því má eiga von á mikilli þróun í þessum efnum á næsta ári. Fyrirtæki geta samt ekki beðið og þurfa að byrja ekki seinna en strax að finna leiðir til að segja hagmunaaðilum frá því hvernig þau eru að bregðast við kröfunni um sjálfbærni. Ekkert af þessum stöðlum öllum og leiðbeiningum er betri en annar, mestu skipt- ir að velja viðmið til að byrja að vinna með, huga að mikilvægi og byrja bara, síðan má alltaf þróa áfram og breyta. STAÐFESTINGAR Eitt er það að fyrirtæki þurfa að innleiða sjálfbærni og langtíma virðishugsun í stefnu sína, annað er að finna leið til að segja frá því hvað þau eru að gera en það þriðja er að þau þurfa að afla óháðra staðfestinga á að upplýsingarnar séu áreiðanlegar því án þess hafa þær mun minna gildi og eru ekki nægjanlega trúverðugar. Það málefni er alveg efni í aðra grein en mér finnst blasa við að við sem stétt séum best til þess fallin að veita 19. Accountants Will Save the World (hbr.org) þessa óháðu staðfestingu. Við höfum nú þegar staðla til að vinna eftir þó þá megi bæta, við erum með aðferðafræðina úr störfum okkar og við kunnum að vinna með upplýsingar og meta gildi þeirra. Við þurfum bara að gæta þess að halda því betur á lofti sem við höfum umfram þá aðila sem vilja koma í stað okkar við þessa staðfestingavinnu sem er fyrst og fremst óhæði okkar en einnig margra ára reynsla og færni í að veita óháðar staðfestingar. „ENDURSKOÐENDUR MUNU BJARGA HEIMINUM“ Peter Bakkker, forseti World Business Council for Sustainable Development lét hafa eftir sér á ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Rio að endurskoðendur myndu bjarga heiminum og sagði að hann meinti það. Máli sínu til stuðnings nefndi hann verkefni sem unnið var að í fyrirtæki sem hann stýrði á sínum tíma og Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið fólst í að gefa hungruðum að borða og náðu þeir gríðarlegum árangri. Ekki bara hjálpin sem veitt var í formi matvæla heldur lærðu þeir starfsmenn sem tóku þátt í verkefninu mikið um hvernig á að leysa flókin vandamál, urðu stoltir af því að vinna hjá fyr- irtækinu og orðspor fyrirtækisins batnaði stórkostlega. Enginn vafi þótti leika á því að fyrirtækið sem um ræddi hefði hagnast verulega á því að taka þátt í verkefninu en ekkert af þeim hagn- aði kom fram í reikningsskilunum. Þeir höfðu engar leiðir til að segja hluthöfunum frá því, né að fá aðhald til að halda þessu góða starfi áfram. Þetta dæmi segir hann, sýnir fram á það að fyrirtæki þurfa að segja frá því hvernig þau hagnast en ekki bara hversu mikið og að endurskoðendur muni finna leiðir til að þróa reglurnar um frásögnina og að þeir muni verða leiðandi í þeirri vinnu.19 Ekki veit ég nú hvort við munum bjarga heiminum en við gegn- um veigamiklu hlutverki sem felst í því að leiða umræðuna um það hvernig fyrirtæki innleiða sjálfbærni í stefnuna, hjálpa þeim að finna leiðir til að mæla árangur, hjálpa þeim að segja frá þeim árangri sem hefur náðst og síðast en ekki síst að veita óháða staðfestingu til að skapa traust. Við getum skipt máli, við erum í samtali við nánast öll fyrirtæki landsins og í einstakri aðstöðu til að hvetja þau áfram og leiðbeina í átt að sjálfbærni og okkar er vera leiðandi afl í þeirri vegferð að bjarga heiminum. Margrét Pétursdóttir Hlutverk okkar og ábyrgð Mælingar SkýrslugjöfRáðgjöf Staðfesting LEIÐA! TRAUST

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.