FLE blaðið - 01.01.2021, Blaðsíða 15
15FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021
REKSTRARHÆFI
Hugtakið rekstrarhæfi er skilgreint í 32. tölul. 2. gr. ársreikn-
ingalaga. Þar segir að félag sé talið vera rekstrarhæft nema
stjórnendur þess ætli sér að leysa félagið upp eða hætta
rekstri þess eða hafa ekki raunhæft val um annað en hætta
starfsemi félagsins. Við mat á rekstrarhæfi skulu stjórnendur
taka tillit til allra fyrirliggjandi upplýsinga um framtíðarhorfur í
rekstri félagsins. Í II. kafla laganna um grunnforsendur ársreikn-
ings kemur fram að við gerð ársreiknings skuli gera ráð fyrir að
félagið haldi starfsemi sinni áfram en leggist hún niður að hluta
skuli taka tillit til þess við mat og framsetningu ársreikningsins.
Í lögunum er ekki að finna nánari leiðsögn um mat eða fram-
setningu í þessum tilvikum.
Umfjöllun um hugtakið rekstrarhæfi er áþekk í alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum en þar er tekið fram að séu reiknings-
skilin ekki sett fram miðað við áframhaldandi rekstrarhæfi skuli
greina frá því á hvaða grunni þau eru gerð. Í IAS 1 Framsetning
reikningsskila segir að við mat á rekstrarhæfi skuli stjórnendur
taka tillit til allra fyrirliggjandi upplýsinga um framtíðina og þá
að lágmarki horfa ár fram í tímann frá reikningsskiladegi.
Eins og sjá má er leiðsögn um á hvaða grunni setja skuli reikn-
ingsskilin fram ef rekstrarhæfisforsendan er brostin ekki ítar-
leg. Í bók sinni um alþjóðlegu reikningsskilastaðlana kemur
fram það mat KPMG að þó rekstrarhæfisforsendan sé ekki til
staðar ætti það almennt ekki að fela í sér heimild til að hætta
COVID-19 heimsfaraldur getur haft
margvísleg áhrif á ársreikninga fyrir árið
2020. Það er því að ýmsu að hyggja og
nauðsynlegt að greina áhrifin tímanlega
og vanda til verka til að tryggja að árs-
reikningar uppfylli allar kröfur sem til
þeirra eru gerðar.
ÁHRIF COVID-19 Á ÁRSREIKNINGA 2020
FRÁSÖGN AF FARALDRI
Jóhann I.C. Solomon, löggiltur endurskoðandi hjá KPMG ehf.
Unnar Friðrik Pálsson, löggiltur endurskoðandi hjá KPMG ehf.
og aðjunkt í reikningshaldi við Háskólann í Reykjavík.
Eins og allir vita hefur heimsfaraldur COVID-19 haft veruleg áhrif á rekstur margra félaga frá því hann skall á með fullum þunga
snemma á síðasta ári. Áhrifin eru misjöfn eftir fyrirtækjum en verulega neikvæð í sumum atvinnugreinum, ekki síst ferðaþjón-
ustu. Sumar atvinnugreinar hafa sloppið þokkalega frá faraldrinum og í einhverjum tilvikum hefur eftirspurn eftir vörum og þjón-
ustu jafnvel aukist.
Í þessari grein verður í stuttu máli leitast við að vekja athygli á nokkrum mögulegum áhrifum COVID-19 á ársreikninga félaga fyrir
árið 2020 en rétt er að hafa í huga að ekki er um tæmandi umfjöllun að ræða. Umfjöllunin byggir bæði á ársreikningalögum og
alþjóðlegum reikningsskilastöðlum en samkvæmt 3. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga skal fara eftir viðeigandi ákvæðum í sett-
um reikningsskilareglum ef ekki er tekið á viðkomandi úrlausnarefni í lögunum eða reglugerðum. Settar reikningsskilareglur eru
annars vegar alþjóðlegir reikningsskilastaðlar og hins vegar reglur reikningsskilaráðs. Stjórnendur félaga sem gera ársreikninga
sína fyrir árið 2020 í samræmi við lög um ársreikninga þurfa því að hafa þetta í huga.