Harmonikublaðið - 15.05.2021, Side 10
Saga harmonikumóta á Islandi
- Fjórði og síðasti hluti -
Harmonikufélag Vestfjarða hefur tvisvar
haldið landsmót SÍHU. í fyrra skiptið 2002
og svo aftur 2017. Þeir voru þó ekki alls óvanir
að halda harmonikumót, því um Jónsmessuna
1998 héldu þeir mót á Núpi í Dýrafirði. Fyrir
25 árum síðan var ekki fyrir hvern sem var að
fara með hjólhýsi eða annað í þeim dúr um
Vestfirði. Vegir meira eða minna mjög slæmir
malarvegir að langmestum hluta. Asgeir S.
Sigurðsson, sá mikli eldhugi var potturinn og
pannan í þessu öllu, en honum til fulltingis
voru nokkrir áhrifamenn, sem voru tilbúnir
að reyna þetta. Þar má nefna Sæmund
Asgeirsson málarmeistara á Isafirði, Frosta
Gunnarsson verkstjóra í Súðavík og Pétur
Bjarnason, sem var kynnir á mótinu. Þá lögðu
hönd á plóg Ásvaldur Guðmundsson
staðarhaldari á Núpi auk margra fleiri.
Guðmundur Ingvarsson póstmeistari á
Þingeyri lét ekki sitt eftir liggja, en hann hélt
utan um dágóðan hóp í Dýrafirði, sem lét Ijós
sitt skína á mótinu. Félagið var ekki á
flæðiskeri statt þegar kom að harmoniku-
leikurum og að sjálfsögðu voru þar fremstir í
flokki Villi Valli og Baldur Geirmundsson.
Ungmennahljómsveit undir stjórn Messíönu
Marsellíusardóttur sýndi listir sínar við
almenna ánægju. Eins og á mörgum öðrum
harmonikumótum var handverksmarkaður á
Núpi, þar sem ýmislegt var í boði fyrir
sanngjarnt verð. Aðsókn var vel ásættanleg,
en ekki voru margir gestanna utan Vestfjarða.
Ibúar úr nágrannasveitarfélögum fjölmenntu
hinsvegar á tónleika og dansleiki og veðrið lék
við mótshaldara og gesti þessa Jónsmessuhelgi,
enda alla tíð verið góð samvinna milli
harmonikuunnenda á Vestfjörðum og
veðurguðanna, eins og sannaðist svo eftir-
minnilega á landsmótunum sem haldin voru
á ísafirði 2002 og 2017. Ekki héldu
Vestfirðingar fleiri harmonikumót með þessu
sniði, en framkvæmd þeirra við landsmótin
2002 og 2017 var rómuð.
Eins og kunnugt er eru landsmótin haldin í
nafni Sambands íslenskra harmonikunnenda
(SÍHU). Oll framkvæmd er í höndum einhvers
aðildarfélags, sem tekur að sér að halda mótið.
Einu sinni hélt landsambandsstjórnin þó mót.
Það hafði nefnilega verið rætt að finna fleiri
fjáröflunarmöguleika fyrir sambandið og
einhver nefndi ball. Það fannst Gunnari alveg
gráupplagt, halda bara útihátíð þegar ekkert
aðildarfélag væri með samkomu, hafa ball á
föstudags- og laugardagskvöld og spila-
mennskan skipulögð jafnóðum. Og það var
gert. Hátíðin var haldið í samkomuhúsinu
Árbliki í Miðdölum um miðjan ágúst og varð
þátttaka með besta móti, þó einhverjir hefðu
10
Hljómsveit Nikkólínu á sviSinu íÁrbliki. Ljósmynd: Siggi HarÍar
efasemdir í þeim efnum í upphafi. Þetta var
á fyrsta formannsári Gunnars Kvaran árið
2012 að stjórnin stóð fyrir þessu móti, sem
Nikkólínufélagar og stjórnarmenn SÍHU
önnuðust af einstakri eljusemi undir öruggri
verkstjórn Gunnars Kvaran. Þar var fremst í
flokki stjórn Nikkólínu, þau Ásgerður
Jónsdóttir, Melkorka Benediktsdóttir og
Hafliði Ólafsson. Svo verður að nefna Halldór
Þórðarson á Breiðabólstað stjórnanda
Nikkólínu, karlakórsins ofl. Einnig Steinunn
og Sigrún Halldórsdætur, Vilhjálmur
Bragason, Jóhann Elísson og margir fleiri
Hreinn Vilhjálmsson kom að sunnan með
hljómflutningstæki FHUR og sá um tækni-
málin, auk þess að leika á bassann meðan entist
máttur í fótum gestanna. Þarna Iék formaður
sambandsins á alls oddi ásamt fleirum sem
tóku að sér að leika fyrir dansi. Hljómsveit
Nikkólínu Iék fyrir dansi auk Vindbelgjanna
úr Reykjavík, stjórnarbands SÍHU og fleiri
ágætra spilara, en fjölmargt dansáhugafólk
brá sér í Dalina af þessu tilefni og veðrið lék
við gesti. Eins og á flestum harmonikumótum
var Iétt skemmtidagskrá á laugardeginum, þar
sem Dalamenn sýndu allar sínar bestu hliðar
í samvinnu við Nikkólínu. Meðlimir
karlakórsins Frosta hlupu úr heyskapnum til
að taka lagið, þeim þótti það nú ekki leiðinlegt.
Að sjálfsögðu var svo glæsilegt kaffihlaðborð
Kvöldljóð í Miðdölum. Ljósmynd: Siggi Harðar