Röst - 01.04.1944, Qupperneq 10

Röst - 01.04.1944, Qupperneq 10
10 R Ö S T Fyrsti barnaskóli á íslandi var stofnaður hér í íVestmannaeyjum árið 1745, fyrir for- göngu prestanna, sem þá voru, Guðmundar Högnasonar og Gríms Bessasonar. Var hann eitthvað endurbættur 1750, en lognaðist ut af nokkrum árum seinna vegna fjárskorts. Til er bréf, dagsett 13. ágúst 1759, frá séra Guðmundi Högnasyni og séra Benedikt Jóns- syni, um leitun samskota eríendis til barna- skóla í Vestmannaeyjum. Fylgdi bréfinu kbstnaðaráætlun og umsögn frá amtmanni. Eigi bar tilra.un þessi neinn árangur og féll skól'ahaíd í Eyjum þar með niður um langt skeið. Um 1S33—43 vaknaði hugmynd um skóla víðsvegar urn landið, þ. á. m. í Vestmanna- eyjum. Prestar rituðu biskupi um þessar skólahugmyndir, m. a. sr. Jón Austmann urn stofnun barnaskófa í .Vestrnannaeyjum. Dró biskup mjög úr þessu. T. d. kveðst hann í bréfi ti! sr. J. A. “eigí sjá meiri ástæðu þar (í Vm.) en annarssíaðar á fandinu að sinna þessu, þar sem enginn barnaskóli sé til nema í Reykjavík.“ 1861 köm hinn/ gagnmerki brautryðjandi, Bjarni E. Magnússon sýsluinaður hingað til Eyja. Hóf hann strax baráttu fyrir stofn- un barnaskóla og veitti unglingunum ókeyp- is fræðslu um nokkura ára skeið. Skrifaði hann dómsmá'aráðuneytinu ýtarlega urn barnafræðsluna í 'Eyjum 1866. Taldi hann höfuðerfiðleikana við stofnun slíks skóla vera íjárhagsvandræðin, kvað kostnaðmn mundu nema um 230 ríkisdöluni á ári, en Vestmannaeyingar gætu eigi greirt nema um 150. Telur hann það siðferðilega skvldu ríkisins að bera umhyggju fyrir fræðslu bárnanna og siðferði og fer fram á, að það greiði það sem á vantar. — þrátt fyrir fjölda bréfa, er sýslumaður reít og til- lögur er hann gerði, auk annars ötulleika og dugnaðar, er hann í hvívetna sýndii í máli1 þessu, Ibgnaðist það útaf. Muri kostnaðúr- inn (1 — 200 rd.) hafa vaxið yfirvöldunum svo í augum. það er ekki fyrr en 1883, að draumur- inu um barnaskóla rætist. Létu Vestmanna- eyingar byggja skólahús á árunum 1883— ‘84. Hús þetta var hlaðið úr steini og stend- ur enn (Dvcrgasteinn við Hieimagötu). Hús- ið var notað fyrir skóla tif 1903. Fyrsti kennj ari við skólanni var Lárus Árnason stúdent frá Vilborgarstöðum og er hann fyrsti skip- aður baruakennarí í Vestmannaeyjum. Árið 1904 var skólinn fluttur að Borg (þar sent póstafgreiðslan er nú). Barnaskólahús það, sem nú er í notkun, var bvggt 1915 (vesturálman) og 1927—‘29- (austuráfman). Á. G. (Heimifdir Jóh. G. Ólafsson og G. M. Magnúss: Alþýðufræðslan). Myndasidan (í^~ 1. Strandvegur, umferðamesta gata Vest- mannaeyja. 2 Barnaskólinn og 6. bekkur C 1939. 3 Fisktökuskip við Básaskersbryggju. 4 Á veiðum út áf Dyrhólaey. 5 Mæðgur. 6 Vestmannaeyjatelpur á peysufötum. 2., 3. og 4. mynd tók Karl Guðjónsson. L, 5. og 6. mynd tók Ingólfur Guðjónsson. Forsíðumynd þessa blaðs tók Karl Guð- jónsson. Vegna mistaka varð forsíðumyndin minni í þetta sinn, en til var ætlast.

x

Röst

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Röst
https://timarit.is/publication/1805

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.