Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1990, Page 118
102
2.8. Þróun i gjaldamálum.
Breytingar í gjaldamálum hafa að undanförnu verið á þann veg að
lækka langlinusamtöl en hækka innanbæjarsamtöl. Þetta hefur
sumpart verið gert i samræmi við stefnu stjórnvalda en á siðustu
árum hefur einnig orðið breyting á gerð gjaldskrár að þvi leyti að
gjöld fyrir nýjar þjónustur hafa verið ákveðin meira með hliðsjón
af kostnaði en áður var gert. Gera verður ráð fyrir að lögð verði
enn meiri áhersla á þessu stefnu i framtiðinni vegna ytri aðstæðna.
Að öðru jöfnu mun þessi stefna hafa í för með sér lægri langlínu-
gjöld fyrir talsima, en aðrar þjónustur munu hækka hlutfallslega.
Að hluta til munu stofngjöld hækka fyrir þær þjónustugreinar, sem
krefjast mikils stofnfjár af stofnuninni og hins vegar hækka
notkunargjöld i þeim þjónustugreinum sem stofnunin rekur vegna
þeirrar skyldu, sem henni hefur verið lögð á herðar.
Fyrir utanlandsumferð verður að gera ráð fyrir að gjöld lækki á
hliðstæðan hátt og fyrir langlinusamtöl vegna ódýrari tækni, en þar
að auki má búast við þvi að hin mikla aukning á simaumferð milli
landa leiði til viðbótarlækkunar, vegna þess að hægt er að beita
stærri rekstrareiningum. Að þessu leyti má segja að utanlands-
umferð sé ekki búin að taka út þann vöxt, sem orðinn er i langlinu-
kerfinu.
Póst- og simamálastofnunin inleiddi 1. nóvember 1990 næturtaxta
fyrir talsima til útlanda. Fyrst um sinn verður þessi taxti 30%
lægri en dagtaxti og gildir frá 23-08 alla daga. Hugsanlega verður
þessi afsláttur aukinn, ef það kemur i ljós að næturtaxti örvi nýja
notkun.
Að öðru leyti er þess að vænta að gjaldskrá muni i rikari mæli en
áður miðast við að gefa stórum notendum betri heildarlausnir en
áður og þetta verður sérstaklega áberandi þegar samnetið, ISDN,
kemur til sögunnar væntanlega milli 1995 og 2000.
2.9. Fjarskiptastjórnun og staðlar
Póst- og simamálastofnun endurskipulagði fyrir nokkrum árum
meðhöndlun ákveðinna þátta á fjarskiptastjórnun til að aðgreina
þessa starfsemi betur frá sölu- og þjónustustarfsemi stofnunar-
innar. Hér var um að ræða að prófun og viðurkenning simanotenda-
búnaðar var færð úr notendabúnaðardeild i radiódeild. í
nágrannalöndum okkar hefur sums staðar verið gengið lengra á
þessari braut og tegundaprófun ásamt reglugerðarmálum, tíðni-
úthlutun og radióeftirlit sett til nýrra stofnana. Önnur
veigamikil breyting felst i stofnun Staðlastofnunar Evrópu, ETSI,
sem hefur tekið við starfsemi simastjórnanna við gerð staðla og
tæknilegra ákvæða fyrir sima- og radióbúnað.
Hugmyndir eru uppi um enn frekari aðgreiningu þessara þátta frá
annarri starfsemi Póst- og simamálastofnunar, t.d. með stofnun
sérstakrar deildar til að annast þessi verkefni eingöngu.
Jafnframt má gera ráð fyrir sem afleiðingu af starfi ETSI að reglur
og tæknileg ákvæði um búnað verði samræmd innan Evrópu i miklu
stærri mæli en gildir i dag og að viðurkenning á sima- og radió-