Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1990, Page 166
150
GJ ALD S KRÁRMÁL
Tillögur um nýjar gjaldskrár eða breytingar á þeim berast borgarráði að
jafnaði frá forstjórum hlutaðeigandi fyrirtækja eða stofnana, eða
stjórnum þeirra.
Með samhljóða afgreiðslu tekur borgarráð ákvörðun um gjaldskrá, en
verði ágreiningur fer málið til afgreiðslu i borgarstjórn við eina
umræðu. I sumum tilvikum þarf samkvæmt lagaákvæðum að leita
staðfestingar ráðherra.
Verður nú vikið stuttlega að einstökum fyrirtækjum og stofnunum
borgarinnar.
Vatnsveita Reykjavíkur hefur nokkra sérstöðu meðal veitustofnana i
gjaldskrármálum, þar sem gjaldskrá hennar miðast ekki við vatnsnotkun
nema að litlu leyti. Almennur vatnsskattur er árlega greiddur af öllum
fasteignum i lögsagnarumdæmi Reykjavikurborgar, sem liggja við vegi eða
opin svæði, þar sem vatnsæðar liggja. Hið sama gildir um aðrar
fasteignir, sem fá vatn úr veitukerfi Reykjavikur.
Hitaveita Reykjavíkur. Heimilt er að hækka eða lækka hitaveitugjöld i
sama hlutfalli og visitala byggingarkostnaðar breytist. Þó skal
heildarkostnaður við hitun húsa með hitaveitu að meðaltali ekki fara
fram úr 80% af kostnaði við hitun húsa með oliukyndingu.
Reykj avíkurhöfn. Gjaldskrá Reykjavikurhafnar er i meginatriðum byggð á
skipagjöldum, skipaþjónustugjöldum og vörugjöldum, auk þess sem gjöld
eru greidd fyrir ýmiss konar þjónustu, sem veitt er á vegum
hafnarinnar. Gjaldskráin er birt með hafnarreglugerð fyrir
Reykjavikurhöfn, sem staðfest er af samgönguráðherra.
Strætisvagnar Reykjavíkur. Gjaldskrá S.V.R. er miðuð við það, að allur
fjármagnskostnaður fyrirtækisins greiðist úr borgarsjóði. Mörg
undanfarin ár hefur borgarsjóður þó orðið að leggja fram fé til
reksturs, þar sem fargjaldatekjur S.V.R. hafa ekki hrokkið fyrir
rekstrarútgj öldum.
Rafmagnsveita. Gjaldskráin miðast við það, að tekjur Rafmagnsveitunnar
standi undir rekstargjöldum hennar svo og aukningu veitukerfisins.
Húsatryggingar. Skylt er að hafa öll hús i lögsagnarumdæminu
brunatryggð hjá þeim aðila, sem tryggingarnar annast, samkvæmt ákvörðun
borgarstjórnar, og með þvi vátryggingarverði er dómkvaddir menn meta.