Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1990, Page 247
231
Endurskoðun greiðslukjara.
96. gr.
Húsnæðismálastjórn getur heimilað frestun á greiðslum hjá einstökum lánþegum ef
greiðslubyrði afborgana, vaxta og verðbóta fer yfir tiltekið hlutfall af heildartekjum greið-
anda.
Tryggingarsjóður vegna byggingargalla.
97. gr.
Af öllum félagslegum íbúðarbyggingum skal leggja allt að 1% af bvggingarkostnaði
hverrar íbúðar í Tryggingarsjóð vegna byggingargalla er gegni því hlutverki að trvggja gæði og
bæta fyrir áföll sem kunna að verða, svo sem byggingargalla, og ekki teljast eðlilegt viðhald.
Sjóðurinn skal varðveittur í Bvggingarsjóði verkamanna.
Nánari ákvæði um sjóðinn skulu sett í reglugerð.
Kaupskylda. Forkaupsréttur.
98. gr.
Framkvæmdaraðili hefur kaupskyldu á öllum félagslegum eignaríbúðum og félagslegum
kaupleigufbúðum fyrstu 10 árin frá útgáfu afsals en í fimm ár á almennum kaupleiguíbúðum.
Eftir þann tíma hefur framkvæmdaraðili forkaupsrétt á eignaríbúðum og kaupleiguíbúðum
sem boðnar eru til sölu.
Þegar íbúðir, sem forkaupsréttur er á. eru til sölu skal eigandi senda tilkynningu þess
efnis til viðkomandi aðila. Sveitarstjórn eða annar framkvæmdaraðili skal tilkvnna eiganda
afstöðu sína skriflega innan 30 daga. Berist tilkynning ekki innan þess tíma telst forkaupsrétti
hafnað.
Hafni framkvæmdaraðili forkaupsrétti á félagslegri eignaríbúð eða kaupleiguíbúð eða
hafi íbúð verið í eigu sama aðila í 30 ár frá útgáfu afsals er eiganda heimilt að selja íbúðina á
almennum markaði enda greiði hann upp skuld við framkvæmdaraðila og Byggingarsjóð
verkamanna. Framkvæmdaraðili skal þá gefa út yfirlýsingu um að niður séu fallnar allar
kvaðir sem verið hafa á íbúðinni um forkaupsrétt og takmarkanir á ráðstöfunarrétti. Skal
yfirlýsingunni þinglýst.
99. gr.
Sveitarstjórn hefur kaupskyldu á öllum íbúðum í verkamannabústöðum bvggðum eftir
gildistöku laga nr. 51/1980tilgildistöku laga þessara við verði, sem tilgreint erí 102. gr.,fvrstu
15 árin frá útgáfu afsals. Eftir þann tíma á sveitarstjórn forkaupsrétt að þeim íbúðum sem
boðnar hafa verið til sölu. Hafni sveitarstjórn forkaupsrétti að verkamannabústað eða að
félagslegri íbúð samkvæmt lögum þessum eða hafi íbúð í verkamannabústað verið í eigu sama
eiganda í 30 ár samfellt er eiganda heimilt að selja íbúðina á frjálsum markaði enda greiði hann
upp áhvílandi uppfærðar eftirstöðvar láns Byggingarsjóðs verkamanna. Sveitarstjórn skal þá
gefa út yfirlýsingu um að niður séu fallnar allar kvaðir sem verið hafa á íbúðinni um
forkaupsrétt og takmarkanir á ráðstöfunarrétti. Skal vfirlýsingunni þinglýst.
100. gr.
Nú er íbúð. sem byggð hefur verið samkvæmt þessum lögum eða eldri lögum um
verkamannabústaði, seld á nauðungaruppboði og skal sveitarstjórn þá nevta forkaupsréttar
síns, sbr. þó 99. gr., og krefjast þess á uppboðsþingi að eignin verði lögð henni út til eignar á
því verði sem hæst hefur verið boðið í eignina eða á söluverði skv. [101. gr.]1) ef það er lægra
en hæsta boð. Að fengnu afsali samkvæmt þessu ákvæði skal afmá í veðmálabókum veðbönd
og höft á eigninni.
1) í yy-lið 3. gr. laga nr. 70/1990 er ranglega vísað í 2. mgr. 102. gr.