Jólaklukkur - 01.12.1943, Page 4

Jólaklukkur - 01.12.1943, Page 4
Séra Sígurbjörn Sínarsson: j^bfangabagðfDöíb YSur er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu. (Lúk. 2, 11—12). Fæðingarhátíð Frelsarans er runnin upp. Hún ber mörg nöfn í meðvitund mann- anna. Hún heitir ljóssins hátíð, friðarins hátíð, perlan í daganna festi, hátíð barn- anna. Og vissulega skín hún eins og gim- steinn á grjóti, eins og rós á eyðimörk, eins og aldinreitur í ríki vetrarins. Vegna þess að hún er helguð honum, sem er ljós og friður kynslóðanna, vegna þess að hann hefir náð að móta þessar hátíðarstundir framar öðrum stundum. Hinn heilagi boð- skapur, sem hver hátíð og helgidagur árs- ins er helgaður, boðskapurinn um frelsara mannanna, á greiðari aðgang að oss þessa stund en aðrar. Oft erum vér mennirnir næmari fyrir því, sem barnið segir, en hinn fullorðni. Barnið Jesús — hver nem- ur ekki staðar frammi fyrir því? Hverjum verður ekki hugsað til fjárhússins og jöt- unnar og reifabarnsins? Margur virðist vera búinn að gleyma honum, sem gekk um kring og boðaði fyrirgefningu og frið við Guð. Margur viðurkennir ekki lengur hann, sem sagði: Ég og faðirinn erum eitt. Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðursins nema fyrir mig. Margur hugsar ekki lengur út í það, að hann flutti orð eilífs lífs. Margur afneitar því, að krossferill og dauði hans hafi nokkra úrslitaþýðingu fyrir vorn lífsferil í dag og líf vort eftir dauðann. En barnið hefir viss forréttindi fram yfir hinn full- orðna mann. Rödd barnsins berst stund- um gegnum þann skarkala, sem kefur raust hins sterka. Auga barnsins megnar stundum meir en hnefi kraftamannsins. Á sama hátt virðist barnið Jesús vekja við- urkenningu og lotningu, undrun og til- beiðslu hjá þeim jafnvel, sem búnir eru að missa sjónar af spámanninum, meistaran- um, frelsaranum. Og ár eftir ár gerist þessi undursamlegi atburður. Ár eftir ár er þessi látlausa frásaga flutt um ung- barnið reifað og liggjandi í jötu, — og heimurinn staldrar við, harkið hættir, gnýrinn þagnar, allra augu beinast í átt- ina til þessarar einstæðu barnsvöggu, hat- ur og heift hjaðnar, eitt andartak stönd- um við allir hlið við hlið eins og bræður og systur og horfum allir í eina átt. Og sjá: Það birtir umhverfis oss, vér skiljum orðin um ljósið í myrkrinu. Það er eins og þegar andlitsdrættir, sem annars mót- ast af miskunnarleysi, hörku og grimmd, mýkjast allt í einu og verða mildir og þýð- ir, — þannig verður svipur tilverunnar þetta kvöld, þessa nótt, þessa hátíð, vegna þess eins, að vér horfumst í augu við barn- ið i Betlehem. Það er harmsefnið mesta, að þessi heil- aga skynjun verður svo fáum annað en ó- ljós og hverful hughrif, án þess að valda neinum úrslitum í lífi þeirra. Þeir eru svo fáir, sem horfa til lengdar í augu hins heilaga barns. Kyrrðin snýst í glaum, helg-

x

Jólaklukkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.