Jólaklukkur - 01.12.1943, Blaðsíða 29
JÓLAKLUKKUR
27
Qó/ar/ð
Sjá guðsmanninn felldan í fjötra
og færðan í dýflissutötra.
í eymd sinni efa hann kennir
og óvissan sálu hans brennir.
Til Jesú hann sendir þá sveina,
er setja fram spurningu hreina;
fær andsvar, er efanum bægir
og óróleik sálar hans lægir.
Þá greinir hann guðlegu merkin
og glöggt skilur dásemdarverkin:
Hinn heilagi holdi er klæddur.
Sjá, heimi er Messías fæddur!
Svo horfir hann hugrór án kvíða
og hugmóðs til komandi tíða.
lan/ieói
Með gleði ber fangelsisfjötra.
Með fögnuði dýflissutötra.
— Þér allir, sem efizt og kvíðið,
Þér allir, sem grátið og líðið,
ó heyrið: Hinn heilagi’ er fæddur!
Sjá, holdi manns guðsson er klæddur!
Til hans með öll harmþungu tárin.
Til hans með öll viðkvæmu sárin.
Hjá honum er huggun að finna.
Hann harmbót vill sérhverjum vinna.
Lát boðast með básúnurómi,
lát birta með dómslúðurhljómi:
Hinn heilagi holdi er klæddur!
— Þér, heimur, er konungur fæddur!
Vald. V. Snævarr.
Þegar Einar sá, hvað Steini var illa á
sig kominn, gekk hann til hans og vafði
höndunum um höfuð hans og kyssti hann
a ennið; það var fyrirgefningarkoss. Lækn-
irinn lagði hendur sínar utan um báða
drengina og sagði:
„Jæja, María, nú eigum við fjögur elsku-
ieg og efnileg börn. Guði séu þakkir fyrir
Þær jólagjafir, sem hann færir okkur, því
Þær munu æfinlega reynast beztar.“
Baldi.
Maðurinn hlýtur að heyja mikla og langa
baráttu með sjálfum sér, áður en honum
lærist að sigrast á sjálfum sér til fulls
og beina öllum huga sínum að Guði. Mað-
urinn hrapar auðveldlega að huggun
manna, þegar hann stendur í eigin krafti.
En sá, sem elskar Krist í sannleika og legg-
ur kapp á að ástunda dyggðir, hnígur ekki
að þess háttar huggun og leitar ekki slíkra
sætinda fyrir tilfinningarnar, en kýs frem-
ur að þola mikið erfiði og harða baráttu
vegna Krists. (Tomas a Kempis).