Jólaklukkur - 01.12.1943, Page 33

Jólaklukkur - 01.12.1943, Page 33
J ÓLAKLUKKUR 31 „Þú lætur þá til skammar verða, því að Guð hefur hafnað þeim.“ Þess vegna vildi hann heyra og tala um ^áð Guðs. Hann þyrsti í orð, sem næðu til sín. En kveldið leið, og hann var engu nær. Morguninn eftir fannst honum allt autt og snautt og framtíðin myrk og von- laus. Það var aðfangadagur jóla. Ó, hve hann þráði, að jólin yrðu gleðileg, en hann sá fram á það, að það gæti ekki orðið í sínu hjarta. Hann sagði því við föður sinn eftir hádegið: „Nú ætla ég að taka mér stund til und- irbúnings undir jólin,“ og fór svo inn. Fað- ir hans skildi hann rétt og aftraði honum ekki. Hann langaði til að fara inn með árengnum sínum og hjálpa honum, en tók Þó þann kost að vera við starf sitt. Hann Sat e. t. v. hjálpað drengnum bezt með fyrirbæn. Dagurinn leið. Björn sat inni og las, gekk út, hugsaði, bað og stríddi. En honum varð ekki ágengt. Jólaklukkur ómuðu. Fólk fór til kveld- söngs. Björn varð einn heima. Honum fannst það gagnslaust fyrir sig að fara í Guðs hús. Þó gat hann ekki linnt hrópinu °g ákallinu. Það steig upp frá sál hans hátt og í hljóði, og loks hljóp hann af stað til kirkjunnar. Það var verið að syngja síðasta sálminn. Það fyrsta, sem hann beyrði var þetta: „--------faðirinn er fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér samastað syninum hjá.“ har komu orð, sem náðu til hans. M. R. Skírteini úr skóla . . . (Framh. af bls. 17). efni í þýðingu sr. Matthíasar.* Hann er sem vænta má skáldlegri á íslenzkunni, og traust og þróttur eigi minni. En frumsálm- urinn er enn barnslegri og eðlilegri son- arkveðja til móður í mikilli sorg. Þá sjást þess merki, að trúarreynsla frumhöfundar og þýðanda fer ekki að öllu saman, þótt hugir beggja sameinist í traustinu á þeim vini, sem engum bregzt. Þess munu fá dæmi, að maður sem ekk- ert hefur orkt annað, geri sálm, er verði mönnum kunnur og kær um mörg þjóð- lönd. Er því eðlilegt að menn spyrji, hvernig það megi verða. Þess má geta, að frá íþróttarinnar sjón- armiði er auðveldara að yrkja á enska tungu en íslenzka. En þó munu ensku mælandi menn vart eiga auðveldara um ljóðagjörð, en íslendingar. Skáld nokkurt hefur sagt: „Ég get beðið, þegar ég yrki.“ Annar skáldhneigður mað- ur segir: „Ég get orkt, þegar ég bið.“ Þótt ekki hafi öllum svo reynzt, þá virðast þau orð hafa sannazt á Jósef Scriven, er hann orkti sálminn. Guð hefur veitt honum gáf- una, er hann bað um hjálp hans til þess að hughreysta móður sína. Að því munú lúta orð hans: „Drottinn og ég gerðum hann í sameiningu,“ enda er frumsálmur- inn játning þess, sem höfundur hefur lært í skóla Drottins síns. Erfiður hafði sá skóli verið höfundin- um. En sálmurinn er skólaskírteini hans. *) Matthías kvaðst og hafa stælt frum- sálminn fremur en þýtt.

x

Jólaklukkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.