Jökull


Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 61

Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 61
Snævarr Guðmundsson og Helgi Björnsson 4. mynd/Figure 4. Horft yfir Heinabergsjökul frá Hafrafelli (tindurinn fremst t.v.) árið 1904. Miðröndin kemur frá Snjófjalli (1440 m) en það er í hvarfi af tindinum v.m. í forgrunni. Handan jökulsins er Rótarfjall (ofan við miðja mynd) og til hægri Geitakinn (725 m). Á milli þeirra sést í Vatnsdalslón. Neðri myndin sýnir svæðið innan rauða rammans, við Vatnsdalslón. – View across the Heinabergsjökull outlet glacier, from Mt. Hafrafell (peak in front to left) in 1904. The medial moraine originates from Mt. Snjófjall (1440 m a.s.l). Beyond the outlet is Mt. Rótarfjall (above centre) and to right of it, Mt. Geitakinn (725 m). In between is the lateral glacial lagoon, named Vatnsdalslón, enlarged in the lower image. Ljósm./Photo. Daniel Bruun. Sigurður tók aðra mynd til norðurs á Fláajökul, frá Grænafelli (Heinabergsfelli) á Mýrum, að öllum lík- indum þann 17. júlí 1937 (7. mynd). Í dagbókarfærslu segir hann: „Síðan héldum við út Austurlandið yfir [Heinabergs]vötnin skammt fyrir neðan og niður að Heinabergi, sem nú er í eyði. Falleg er útsýn af fjallinu til jöklanna og fæst þar glöggt yfirlit yfir það hversu mjög þeir hafa gengið til baka.“ (Sven Þ. Sigurðsson, 2004). Austurland var hluti af Skálafellslandi (Aust- urbæjarparti) og þar var hjáleiga á miðri 19. öld. Vit- að er að þar var búið árin 1848–1855 en vera má að búseta hafi verið þar fyrir þann tíma. Þar sér enn til tófta (Þorsteinn Guðmundsson, 1972). Austurland var rúma 5 km suðvestur af Heinabergi. Þegar Sigurður tók myndina huldi jökullinn enn stóran hluta Miðfells (120 m). Við sporðinn var um 15 m djúpt lón sem náði á Heinabergsöldur, utan í Grænafelli. Þetta lón, sem sést á myndinni, hafði myndast nærri aldamótunum 1900 þegar jökullinn tók að hopa af öldunum. Í lónið safnaðist vatn úr jökul- kvísl sem þá rann fram milli Heina og Miðfells (3. mynd). Affallsvatnið sameinaðist síðar Hólmsá. Jafn- framt hvíldi jökullinn ofan á Merkifelli (Jökulfelli) en það er um 200 m hátt. Á milli þessara fella var jök- ullinn meira en 150 m þykkur. Árið 1937 hafði suð- vesturarmur Fláajökuls hopað 0,5–0,6 km frá 1904 og alls 0,7–1,0 km frá lokum litlu ísaldar. Fram til ársins 2017 nemur hop Fláajökuls frá um 1890, nálægt 2,1 km suðvestan við Merkifell og 3,0 km austan þess. Sumarið 2017 var gerð ferð til þess að leita uppi hvar Sigurður hafði staðið og tekið myndina, átta ára- tugum fyrr og tekin ný ljósmynd (7. mynd). Lónið hvarf einhvern tíma á árunum fyrir 1945 en áfram- haldandi hop opnaði vatninu leið þar sem jökullinn hafði fyrr stíflað. Jökullinn hefur nokkurn veginn skil- að frá sér Miðfelli og fyrir nokkrum árum færðist jök- ulkvíslin, sem fyrr hafði runnið vestan við Miðfell, og kemur nú fram úr gili milli þess og Merkifells. 56 JÖKULL No. 67, 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.