Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 62
Jöklabreytingar af gömlum ljósmyndum
5. mynd/Figure 5. Ofar: Mýrajöklar (talið frá v.): Skálafellsjökull, Heinabergsjökull og Fláajökull, frá Zepp-
elin í grennd við Hálsaós. Neðar: Svipað sjónarhorn til Mýrajökla 27. júlí 2017. – The „Mýrajöklar“ outlet
glaciers, from left: Skálafellsjökull, Heinabergsjökull og Fláajökull, exposed from Zeppelin above Hálsaós
estuary. Below: Similar scenery July 27th, 2017. Ljósm./Photos. ©Archiv der Luftschiffbau Zeppelin GmbH,
Friedrichshafen; Snævarr Guðmundsson.
Breiðamerkurjökull frá Reynivöllum 1904
Í bók Daniels Bruun (1928) er teikning (8. mynd) sem
sýnir menn á hestbaki og útsýni til Fellsfjalls, Breiða-
merkurjökuls og Öræfajökuls, frá Reynivöllum, vest-
asta bænum í Suðursveit. Teikningunni ber afar vel
saman við ljósmynd, sem Bruun tók frá Reynivöllum
á sama tíma og staðfestir mikla nákvæmni í teikningu
hans. Ekki sést jökuljaðarinn á ljósmyndinni, en hann
er sýndur hér á teikningu Bruuns. Hæð í jöklinum
nærri sporði, á teikningunni, vekur athygli. Þar var
skammt fram á sporðinn, sem var brattari, en ekki er
ólíklegt að hún sýni jökullinn brotna á Brennhólaöldu.
Talið er að aldan hafi myndast á 19. öld í framhlaupi
en árið 1894 lýsti Þorvaldur Thoroddsen (1959) því
að ofan við Brennhólakvísl, sem þá var: „... er kúpa
í jökulröndinni, og þegar gangur er í jöklinum, koma
þar miklar sprungur, eins og einhver fyrirstaða sé.“
JÖKULL No. 67, 2017 57