Jökull - 01.01.2017, Blaðsíða 68
Jöklabreytingar af gömlum ljósmyndum
Breiðamerkurjökull og Fjallsjökull 1935
Þann 3. júlí 1935 tók Helgi Arason (frá Fagurhóls-
mýri) mynd af bræðrunum Sigurði og Ara Björnssyni
frá Kvískerjum, nærri jaðri Breiðamerkurjökuls, með
sjónarhorn á Miðaftanstind og Rákartind í Breiða-
merkurfjalli (11. mynd). Á þeim tíma var fjallið enn
umlukið Breiðamerkurjökli og Fjallsjökli. Jökullinn
hafði þá hopað um 0,7 km á þessum slóðum frá há-
marksstöðu um 1880–1890 en þó voru enn 1,75 km
yfir jökul að fara, frá sporði og í Breiðamerkurfjall,
þar sem styttst var. Lón voru farin að myndast við
jaðar Breiðamerkurjökuls, forstig Jökulsárlóns á mið-
biki Breiðmerkursands, og ekki fjarri þeim stað þar
sem myndin var tekin, Breiðárlón. Árið 2015 leitaði
annar höfunda (SG) staðinn uppi, þaðan sem Helgi
hafði tekið myndina og endurtók myndatökuna. Þá
voru næstum full 80 ár liðin frá því að Helgi og bræð-
urnir stóðu þarna. Eftir 1935 hefur jökullinn á þessum
slóðum hopað rúma 3,4 km og því samtals um 4,2 km
frá hámarksstöðu. Myndirnar endurspegla ekki aðeins
rýrnun jökulsins heldur landbreytingar framan við þar
sem sporðurinn lá. Ís hefur þiðnað og sum grettistök
standa nú hærra upp úr jökulaurnum, líklega vegna
frostlyftingar.
Niðurlag
Ljósmyndir af jöklum, eins og hér hafa verið kynnt-
ar, reynast ómetanlegar til að varpa ljósi á jökulhop á
áratugunum eftir að danska herforingjaráðið kortlagði
Ísland og áður en AMS tók loftmyndir til kortagerð-
ar árin 1945–1946. Greinin bætir nokkru við fróðleik
um gamlar og nýjar ljósmyndir af jöklum þó að þess-
um þætti verði seint gerð full skil. Á undanförnum ár-
um hafa höfundar safnað slíkum upplýsingum til þess
að bæta sýn á þetta tímabil en fá eða engin kort voru
þá gerð af íslenskum jöklum. Ljósmyndirnar eru nær
einu heimildirnar um stöðu jökla frá þessum árum.
SURVEYING GLACIER RETREAT
BASED ON OLD PHOTOGRAPHS
How the retreat of outlet glaciers of Vatnajökull ice
cap, Southeast Iceland, proceeded in the period be-
tween 1904 to 1945, is vaguely known. In 1904 the
area was surveyed by the Danish General Staff (DGS)
and in 1945 aerial photographs were used to produce
accurate maps by the American Map Service (AMS).
Only few photographs are known that give insight to
the size and extent of the glaciers in the first decades
of the 20th century. Here we introduce a small num-
ber of photographs from the period between 1904 and
the 1930s. The location of six of these photographs
was identified and the action repeated.
We present a map of the outlets of SE-Vatnajökull
along with photographs taken in their vicinity. Mýrar-
jöklar is a synonym for the three outlets, Skálafell-
sjökull, Heinabergsjökull and Fláajökull (Figure 1).
Photographs taken during the 1904 survey by the
DGS, provide a perspective of the size and distribu-
tion of the post-Little Ice Age Skálafellsjökull and
Heinabergsjökull outlet glaciers. The Danish ethno-
grapher and archaeologist Daniel Bruun (1856–1931)
participated in the land surveying of the DGS 1903–
1904, in Southeast-Iceland. Recently, the locations
of two of his photographs were identified and pho-
tographed for comparison (Figures 4 and 8).
We discuss changes, especially of the Fláajökul
outlet with examples from the 1930s. A wide angle
shot, taken onboard the airship Graf Zeppelin, which
visited Iceland in 1930 and 1931, shows the Mýra-
jöklar outlets (Figure 5), on the morning of 17 July
1930, on way to Reykjavík. A recent photo is added
for comparison. Two photos, from 1935 and 1937,
by the late Icelandic geologist Sigurður Þórarinsson
are also presented (Figures 6 and 7). Location of the
exposures were revisited for repeat photography and
comparison.
In 1904 the Mýrajöklar outlet glaciers had re-
treated 0.2–0.7 km. In 1930, the Fláajökull outlet had
retreated 0.4–0.8 km, while the Skálafellsjökull and
Heinabergsjökull retreated 0.9–1.5 km. In 2017 these
glaciers had retreated 2.2–3.0 km since their Little Ice
Age maximum extent in the 1890s.
A few photographs of Breiðamerkurjökull outlet
glacier exist from the beginning of the 20th century
and the 1930s. A drawing by D. Bruun, of the out-
let (Figure 8) is most likely based on a photograph
he took in 1903 or 1904. The drawing shows men
on horseback and a scenic view from Reynivellir,
the westernmost farm in the Suðursveit district, to-
JÖKULL No. 67, 2017 63