Jökull - 01.01.2017, Page 71
Bergur Einarsson
Grímslandsjökull – Líkt og undanfarin ár var ekki
hægt að mæla sporðinn vegna snjóa.
Langjökull
Hagafellsjöklar – Mælingar náðust við bæði Vestari-
og Eystri-Hagafellsjökul þetta árið. Talsverðar breyt-
ingar eru framan við Vestari-Hagafellsjökul. Í skýrslu
Einars Ragnars Sigurðssonar segir:
„Í skýrslu 2012 og 2013 var minnst á hryggi á
svæðinu sem er nýkomið undan jökli. Þessir hryggir,
sem voru vegna sprungufyllinga, eru ekki jafn greini-
legir þegar dauðís undir þeim hefur bráðnað verulega.
Jökulskerið sem kom upp úr jöklinum um 2010 er
ekki lengur eiginlegt jökulsker þar sem jökullinn fyrir
neðan það hefur bráðnað. Líklegt er að meira af föstu
bergi sé að koma undan jöklinum vestar.“
Hofsjökull
Múlajökull suður – Skýrslu Hermanns Leifssonar
fylgir hugleiðing um hættu af lónum við sporða jökla
og frásögn af slysi við jökulinn. Í skýrslunni segir:
„Lónið við jökulsporðinn stækkar og gerir mæl-
ingar bæði erfiðar og hættulegar samanber slysið sem
varð á þessum stað 10. september 1976 er Sigurgeir
Runólfsson bóndi á Skáldabúðum og sporðamælinga-
maður rann af jökulsporðinum og í lónið og drukkn-
aði. Ekki var hann þó við mælingar er þetta gerðist
heldur var hann að eltast við lamb. Sigurgeir var fædd-
ur 1905.“
Nauthagajökull – Talsverðar breytingar eru á vatnafari
framan við Nauthagajökul. Í skýrslu Hermanns Leifs-
sonar segir:
„Nauthagajökull biksvartur á að líta og sér hvorki
á gráan hvað þá hvítan díl. Ólafsfellskvíslin er nú þurr
undir fellinu og kemur þess í stað undan miðjum jökli
og rennur niður með Laugarhólnum vestanverðum.“
Sátujökull við Eyfirðingahóla og á Lambahrauni –
Skýrslu Valgeirs Steins Kárasonar fylgir lýsing á
vatnafari framan við Sátujökul. Valgeir segir að frek-
ar lítið vatn hafi verið í Skálakvísl/austurkvísl og
miðkvíslinni þegar sporðurinn var mældur en talsvert
Jöklamerki 176 framan við Síðujökul. Austurhluti Síðujökuls, Hágöngur, Geirvörtur og Þórðarhyrna sjást í
baksýn. – An iron rod reference point for the measurements of front variation of Síðujökull. The eastern part
of Síðujökull and the mountains Hágöngur, Geirvörtur and Þórðarhyrna are in the background. Ljósm./Photo:
Hlynur S. Pálsson, 6. ágúst, 2016.
66 JÖKULL No. 67, 2017