Jökull


Jökull - 01.01.2017, Page 75

Jökull - 01.01.2017, Page 75
Society report Árni Kjartansson Fæddur 22. nóvember 1922, dáinn 28. september 2017 Fyrir röskum sex áratugum lyfti lítill hópur fólks grettistaki í jöklarannsóknum á Íslandi. Hvernig stóð á því að þessi hópur náði að áorka svo miklu sem raun ber vitni? Þessi spurning leitar á hugann nú þegar kvaddur er einn þeirra frumkvöðla sem hvað þyngst lögðust á árarnar, Árni Kjartansson, tæplega 95 ára að aldri. Svarið er ekki einhlítt, en það er sennilegt að þyngst á metunum hafi verið samtakamáttur hópsins samfara öruggri forystu. Allir lögðu saman og þannig fékk styrkur hvers og eins notið sín. Sá skriðþungi sem öflugur hópur náði á upphafsárum Jöklarann- sóknafélagsins var hvorki sjálfsagður né sjálfgefinn. Á sex ára tímabili, milli 1951 og 1957 voru byggð hús í Breiðamerkursandi, í Esjufjöllum, Jökulheimum og á Grímsfjalli. Tímaritinu Jökli, fyrsta alþjóðlega vís- indatímariti Íslendinga sem kom út með reglubundn- um hætti, var hleypt af stokkunum. Vorferðunum, ár- legum rannsóknaleiðöngrum á Vatnajökul var komið á. Fyrstu mælingar á þykkt jökla hér á landi voru gerð- ar í Fransk-Íslenska leiðangrinum á Vatnajökul 1951 og í sérstöku átaki á Mýrdalsjökli og í Grímsvötnum sumarið 1955. Ávaxtanna af þessu átaki njótum við í dag, en uppbyggingu aðstöðu með smíða jöklahúsa var haldið áfram næstu áratugina. Þar var fylgt þeim takti sem sleginn var í upphafi. Þessi saga uppbyggingar í þágu rannsókna og ferðamennsku var og er borin uppi af starfi áhuga- manna. Fólks sem nýtur þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja jöklaferðum. Þar þarf fyrir- hyggju, þekkingu, reynslu og rétt hugarfar. Þetta fólk er haldið jöklabakteríunni sem erfitt hefur reynst að lækna fólk af. Sú baktería er hinsvegar góðkynja og færir þeim sem hana hafa tekið og rækta samband- ið við jöklana, upplifanir og unaðsstundir í harðri en ægifagurri náttúru Vatnajökuls. Hún viðheldur sér með góðum minningum og traustum vinaböndum. Árni var í hópi þeirra dugmiklu skíða- og fjalla- manna sem Jón Eyþórsson leitaði samstarfs við þeg- ar Jöklarannsóknafélaginu var komið á fót. Fram eft- ir 20. öld voru rannsóknastofnanir fáar og smáar og ekki í stakk búnar til að hrinda af stað stórverkefnum á jöklum uppi. Eftir áratuga starf var Jón kominn á þá skoðun að vænlegasta leiðin til að ná árangri í þessu litla landi væri áhugamannafélag þar sem leiddir væru 70 JÖKULL No. 67, 2017

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.