Jökull - 01.01.2017, Side 76
saman vísindamenn og öflugir fjalla- og ferðamenn.
Skíðafólk úr Ármanni var fjölmennt í þeim harðsnúna
hópi sem myndaði fyrsta kjarnann í starfi félagsins.
Þeirra á meðal var Árni Kjartansson. Þessi hópur
stundaði Jósepsdal á vetrum og tók þar sína fjallabakt-
eríu sem þróaðist svo yfir í jöklabakteríu.
Árni var drífandi og öflugur félagsmaður. Hann
átti hugmyndina að því að nýta hið nýfundna Hófs-
vað á Tungnaá og fara á Vatnajökul um Tungnaárjök-
ul. Til að hrinda hugmyndinni í framkvæmd kom Árni
á fyrstu vorferðinni, en hún var farin seint í júní 1953.
Þar leiddi hann saman þá Sigurð Þórarinsson og Guð-
mund Jónasson. Eftir það varð ekki aftur snúið og
vorferðir hafa verið farnar árlega alla tíð síðan. Árni
var mörg næstu ár einn helsti hvatamaður ferðanna og
kom að smíði skálanna í Jökulheimum og á Gríms-
fjalli. Nú, áratugum síðar, eru ljósmyndir hans mikil-
væg heimild um þessar ferðir og fólkið sem tók þátt.
Segir það nokkuð um Árna að þegar honum var gef-
inn slidesmyndaskanni á 85 ára afmælinu settist hann
við tölvuna og tók til við að koma myndasafni sínu
á tölvutækt form. Hann færði síðan félaginu að gjöf
disk með myndum úr ferðum þess á árunum 1953–
1957. Árni var gerður að heiðursfélaga JÖRFÍ á 25
ára afmæli félagsins 1975. Hann var síðan endurskoð-
andi reikninga þess frá 1975 til 2016 eða í 41 ár.
Fyrstu kynni mín af Árna var þegar ég, átján ára
gamall nemandi við Menntaskólann við Sund, gerði
mér ferð yfir Gnoðarvoginn í kjörbúðina Vogaver þar
sem Árni réð húsum, til að fræðast um fjallgöngu-
afrek hans. Á þessum árum tókum við Ari Trausti
Guðmundsson saman fjallaannál í ársrit Alpaklúbbs-
ins og grófum upp ýmislegt um fjallgöngur og klifur.
Árni tók mér ljúfmannlega og sagði m.a. frá því þegar
hann og nokkrir félagar hans í Flugbjörgunarsveitinni
gengu fyrstir manna á Hrútfjallstinda í ágústmánuði
1953 í leit að breskum stúdentum sem hurfu á Öræfa-
jökli.
Ekki var mulið undir Árna Kjartansson. Faðir hans
drukknaði þegar hann féll útbyrðis af togaranum Arin-
birni Hersi í mars 1933 þegar Árni var tíu ára gamall.
Fljótlega eftir það lauk skólagöngu hans því fjölskyld-
an þurfi á vinnandi höndum að halda til að komast af.
Árni varð kjötiðnaðarmaður og síðar kjötkaupmaður í
áratugi.
Árni og Hulda við Hvannadalshnúk í brúðkaupsferðinni á Vatnajökul, vorið 1956.
Myndin var birt í 6. árgangi Jökuls sama ár. Ljósm./Photo. Ingibjörg Árnadóttir.
JÖKULL No. 67, 2017 71