Jökull - 01.01.2017, Qupperneq 89
Sléttjökli norðan hennar. Jafnframt var sett upp veður-
stöð á söðlinum milli Sólheima- og Kötlujökla. Stöð-
in var sótt í september og vitjað um stikur í öskjunni
en þær voru þá fallnar og fundust ekki. Óhagstæð tíð
varð til þess að ekki tókst að fara á Sléttjökul að lesa
af vírunum sem þar voru.
2. Vorferð 3.–11. júní. Ferðin var farin um Jökulheima
og Tungnaárjökul eins og oftast áður. Unnið var að
margvíslegum verkefnum, m.a. ýmsar mælingar á
Bárðarbungu, í Grímsvötnum, GPS mælingar á jök-
ulskerjum, íssjármælingar í Skaftárkötlum og víðar,
boranir eftir gjóskulagi Grímsvatna frá 2011 á Skeið-
arárjökli til að kanna breytingar, mæld var snjódýpt
með radar o.fl. Ferðin heppnast vel. Fjórir fram-
haldsnemar og einn listamaður tóku þátt í ferðinni og
var kostnaður vegna þeirra greiddur af styrk frá Vin-
um Vatnajökuls.
3. Sporðamælingar. Í byrjun febrúar höfðu Bergi Ein-
arssyni, umsjónarmanni sporðamælinga borist skýrsl-
ur um mælingar á 32 stöðum. Er það svipað um-
fang og áður. Jöklar hopa hratt víðast hvar. Sá ágæti
gagnvirki vefur http://spordakost.jorfi.is/ geymir all-
ar sporðamælingar félagsins og forvera þess, allt frá
upphafi. Unnið var í vefnum á árinu, hann endurbætt-
ur og fleiri myndir settar inn. Vaskur hópur jöklafólks
vinnur að þessu verki.
FUNDIR
Auk venjulegra aðalfundarstarfa sýndi Valdimar
Leifsson kvikmyndagerðarmaður mynd sína Blóma-
garður jökulsins á aðalfundinum 23. febrúar. Á vor-
fundi 26. Apríl flutti Eyjólfur Magnússon erindi um
hlaupið úr Hamarskatlinum í júlí 2011. Að loknu
kaffihléi sýndi Anna Líndal myndir úr ferðum sínum
með JÖRFÍ. Haustfundur var 25. október. Þar fjallaði
Ívar Örn Benediktsson um rannsóknir sínar og sam-
starfsfólks við Múlajökul. Á eftir sýndi Gunnlaug-
ur Þór Pálsson kvikmynd sýna Jöklaland. Allir þessir
fundir fóru fram í aðal fundarsalnum í Öskju, náttúru-
fræðahúsi Háskóla Íslands. Fundirnir voru ágætlega
sóttir, og var aðsókn svipuð að öllum, um 50 manns.
Fjórði fundurinn var haldinn í fundarsal Jarðvísinda-
stofnunar þann 19. nóvember, sama dag og árshá-
tíðin. Þar var haldin tveggja tíma dagskrá um niður-
stöður sporðamælinga og aðferðir við mælingar. Var
sporðamælingafólki um allt land sérstaklega boðið á
fundinn. Mæting fór fram úr björtustu vonum en um
á fundinum voru 48 manns, Þar fluttu Skafti Brynj-
ólfsson, Snævarr Guðmundsson, Oddur Sigurðsson,
Tómas Jóhannesson og Bergur Einarsson erindi. Í
lokin voru umræður um nýjungar í mælingum.
HEIÐURSFÉLAGI
Á aðalfundi var Haukur Hallgrímsson kjörinn heið-
ursfélagi JÖRFÍ en hann er einn tveggja eftirlifandi
stofnfélaga og hefur tekið þátt í starfinu æ síðan.
ÚTGÁFA JÖKULS
Eins og oft áður kom Jökull 65 út í febrúar. Hann var
120 síður að stærð með sex ritrýndum fræðigreinum
auk um 30 blaðsíðna af félagsefni ýmiskonar. Dreif-
ing Jökuls erlendis er nú í höndum Bóksölu stúdenta.
Bryndís, aðalritstjóri hefur eins og undanfarin mörg ár
haft örugga forystu um ritið og útgáfuna.
FRÉTTABRÉF OG VEFSÍÐA
Hálfdán sá um fréttabréfið. Þá hélt hann einnig utan
um heimasíðu félagsins með aðstoð Jóhönnu Katrínu
Þórhallsdóttur.
SKEMMTIFERÐIR
Auk allmargar GJÖRFÍ gönguferðir voru farnar á
skemmtilega staði í grennd við Reykjavík á þriðju-
dagskvöldum. Árleg sumarferð var í þetta sinn far-
in helgina 12.–14. ágúst í Núpstaðarskóga. Um 30
manns tók þátt, en farið var á einkabílum. Tjöldum
var slegið á föstudagskvöldi og síðan gengið í skýjuðu
en hægu veðri á Súlutinda á laugardeginum. Á baka-
leið í tjaldstað tók að rigna. Tekið var upp í blautu á
sunnudagsmorgun og farin til baka leið milli Núpsár
og Súlu, en hún hefur nú breytt farvegi sínum og fell-
ur til Gígjukvíslar. Má reikna með að sú breyting sé
varanleg. Tengist hún enda hopun Skeiðarárjökuls.
SKÁLAMÁL
Miðað við mörg undanfarin ár var síðastliðið ár frem-
ur rólegt. Í Jökulheimum var gert við kyndingu í
gamla skálanum og um haustið þurfti að laga olíuleka
og smit í andyri hússins. Húsin í Jökulheimum eru nú
í mjög þokkalegu standi eftir endurbætur síðustu ára.
Á Grímsfjalli var helst unnið í rafstöðvarmálum, en
84 JÖKULL No. 67, 2017