Jökull


Jökull - 01.01.2017, Page 90

Jökull - 01.01.2017, Page 90
Jöklarannsóknafélag Íslands erfiðleikar með kælikerfi fyrir hina nýju vél sem sam- vinna er um við Neyðarlínuna settu lit á starfið. Ekki tókst að ljúka uppsetningu nýs kælikerfis, en stefnt er á að það verði gert næsta vor. Er það allra von að þar með verði byrjunarörðugleikum vegna þessarar raf- stöðvar lokið. Eins og áður bar skálanefnd ábyrgð á skálaumsjón og viðhaldi. BÍLAMÁL Farnar voru fjórar ferðir í Jökulheima, þrjár vinnu- ferðir og ein eldsneytisferð. Þá fór bíllinn dagsferð á Mýrdalsjökul í maí og síðan að sjálfsögðu í vorferð á Vatnajökul í júní. Í þeirri ferð brotnuðu báðir framöxl- ar þegar bíllinn fór í sprungu á Skeiðarárjökli. Eftir viðgerð er bíllinn í ágætu standi. Eins og oft áður háir það starfi bílanefndar að hafa ekki húsnæði fyrir bíl- inn. Því hefur þurft að sinna viðhaldi utandyra, við hús formanns bílanefndar í Vogum. SAMSTARF VIÐ LANDSVIRKJUN Forsenda öflugra vorferða er að félagið geti hér eft- ir sem hingað til notað öflugan snjóbíl sem flutt get- ur eldsneyti, tæki og annan farangur. Landsvirkjun hefur verið félaginu haukur í horni og styrkt okkur með fjárframlagi, enda nýtist sú aðstaða sem félag- ið skapast fyrirtækinu eins og öðrum aðilum sem hafa hag af öflugum jöklarannsóknum. Þriggja ára saming- ur milli félagsins og Landsvirkjunar rann út í árslok 2016. Unnið er að samningi til næstu þriggja ára. ÁRSHÁTÍÐ Hátíðin var haldin 19. nóvember, sama dag og sporða- mælinga fundurinn. Hún hófst á fordrykk í boði Ell- ingsen út á Granda. Þaðan var að venju haldið út í óvissuna og í þetta sinn endað í Mosfellsbæ. Árshá- tíð var í þetta sinn nokkuð vel sótt, en um 60 manns mættu og skemmtu sér hið besta. VINIR VATNAJÖKULS Styrkur fékkst frá vinum Vatnajökuls til þátttöku fjög- urra framhaldsnema í jöklafræði og jarðvísindum í vorferðinni. Þessi styrkur nýttist mjög vel og þótti þessi nýjung lofa góðu. Nemarnir voru frá þremur há- skólum í þremur löndum. Einnig tók þátt á sömu for- sendum Katerina Mistal, sænsk myndlistarkona sem vinnur með myndbönd og annað efni og safnar efni- viði í ferðum á jökla. Því miður hlaut framhalds- styrkur vegna samskonar stuðnings 2017 ekki náð fyr- ir augum úthlutunarnefndarinnar. Stjórnin mun leita leiða til að taka upp þennan þráð, enda nýtist hann bæði bæði nemunum og rannsóknum í ferðinni. LOKAORÐ Ferðamennska er nú mjög vaxandi hér á landi. Með- al ferðalanga sem sækja landið heim er fólk sem vill ganga á jökla og ferðast um víðáttur Vatnajökuls. Í þessu felast bæði ógnir og tækifæri fyrir félagið. Það er jákvætt að fleiri leggi leið sína inn á víðáttur Vatna- jökuls og kynnist undraheim hans. Húsin eru vel til þess fallin að taka við litlum hópum og ef vel er hald- ið á málum getur aukin notkun hjálpað til við rekstur og viðhald jöklahúsanna. Að sama skapi kallar aukn- ing á betri úrlausnir í hreinlætis- og salernismálum, t.d. í Esjufjöllum þar sem enn er enginn kamar. Stjórn JÖRFÍ gerir sér grein fyrir að fylgjast þarf með á þessu sviði og leita leiða til að fylgja tíðarandanum. Félagið er eini aðilinn sem á hús á Vatnajökli. Segja má að því fylgi ákveðin ábyrgð. Við munum leitast við að axla þá ábyrgð en jafnframt leita stuðnings við nauð- synlegar endurbætur hjá Vatnajökulsþjóðgarði og eftir atvikum öðrum opinberum aðilum. Flutt á aðalfundi 28. febrúar, 2017, Magnús Tumi Guðmundsson Útsýni til Eyjafjallajökuls og Vestmannaeyja í vorafkomumæliferð JÖRFÍ í maí 2017. – View from Mýrdals- jökull towards Eyjafjallajökull and Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Photo. Finnur Pálsson. JÖKULL No. 67, 2017 85

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.