Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 12

Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 12
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I www.heimur.is12 Ágúst Tölvuheimur 2003 TÖLVUR Afþreyingartölvan ABS Media Center PC 8500 (find.pcworld.com/34928) MEDIA CENTER PC 8500 TÖLVAN frá ABS sannar að tölvurnar eru að fikra sig út úr skrifstofum og svefnherbergjum yfir í önnur herbergi heimilisins. Tölvan er hönnuð með það í huga að hún verði höfð í stofunni. Uppsetningin sem við prófuðum með 2,8 GHz Pentium 4 örgjörva er til að mynda í stílhreinum kassa ekki ósvipuðum hefð- bundnum hljómtækjum sem auðvelda að tölvunni sé komið fyrir í hljómtækjaskápnum. 8500 tölvan keyrir á Windows XP Media Center Edition stýrikerfi. Það er sér- sniðin útgáfa af Windows XP sem meðal annars er með inn- byggðan hæfileika til að taka beint upp úr sjónvarpi á svipaðan hátt og TiVo stafræna upptökutækið gerir. Reyndar er sjónvarps- upptakan ekki alveg jafnauðveld á Media Center tölvunni en vel gerleg samt og jafnvel skemmtileg. Vel valdar viðbætur, svo sem Cr- eative Inspire 6.1 6600 hátalarasett fullkomna svo pakkann. Svo einfaldar RF fjarstýring (e. Radio Frequency, þ.e. með útvarpsbylgjusendi) sem með fylgir áhorf á DVD myndir, tónlistarhlustun,upptöku og afspilun sjónvarpsefnis sem og myndasýningar. Töflutölvan Nec Versa LitePad (find.pcworld.com/34844) LÉTT OG MEÐFÆRILEG eru töfraorðin í dag. Haganlega hönnuð töflutölvan frá NEC er rétt tæplega 1,5 sentímetrar á þykkt og ekki nema rétt um kíló að þyngd. Hlýtur það að teljast kjör- þyngd tölvu sem ætlað er að maður beri með sér hvert sem er. ÖFLUG BORÐTÖLVA Dell Dimension 8300 (find.pcworld.com/35582) Einkunnagjöf fyrir áreiðanleika hefur dalað ör- lítið, en tölvurnar frá Dell standa samt enn feti framar í gæðum. HAGKVÆM BORÐTÖLVA Dell Dimension 4550 (find.pcworld.com/35585) Áreiðanleg tölva. Brátt er von á næstu útgáfu sem kallast 4600. FARTÖLVA SEM KOMA Á Í STAÐ BORÐ- TÖLVU IBM ThinkPad T40 (find.pcworld.com/34817) Þessi öfluga Pentium M fartölva gekk í heilar sex klukkustundir í prófunum okkar. ÓHEMJUMEÐFÆRILEG FARTÖLVA Sharp Actius UM32W (find.pcworld.com/33290) Sharp Actius UM32W er bæði þunn og létt (ekki nema 1,4 kg.), með innbyggðri þráðlausri tengingu og verulega hraðvirk. LÓFATÖLVAN Palm Tungsten T (find.pcworld.com/35561) Helst ber að nefna glæsilegan 320 sinnum 320 punkta litaskjá og innbyggða blátannarteng- ingu (e. Bluetooth). Fleiri vinningshafar H E I M S K L A S S AV E R Ð L AU N I N [ T-Mobile Sidekick ] (find.pcworld.com/34901) FRAMLEIÐENDUR tæknibúnaðar hafa um all- nokkra hríð verið að reyna að troða Internetinu í jakkavasa almennings, - alla jafna með orkukrefj- andi og óhemjudýrum tækjum. Í ár hafa hins vegar komið fram fjölmargar smágerðar Netvélar með ágætis notagildi. Uppáhaldsgræjan okkar? Jú það er nýjasta litaskjásútgáfan af Sidekick vél T-Mobile símafélagsins. [Félagið er með starfsemi í Bandaríkjunum og einnig í nokkrum Evrópulöndum. Enn sem komið er Sidekick bara til fyrir Bandaríkjamarkað.] Lófatölva þessi er nett og meðfærileg og upplagt að bera hana með sér í beltisklemmu. Segja má að þarna sé í fyrsta sinn komin fram þráðlaus smágræja sem virðist ráða almennilega við framsetningu Internetsins. Hönnunin er flott, en skjárinn opnast á snúningsás, lyklaborðið er með QWERTY framsetningu og litaskjárinn er skarpur. Af innbyggðum hugbúnaði má nefna nothæfan Internetvafra, tölvupóstforrit, skyndiskilaboðaþjónustu og fleira. Í Bandaríkjunum kostar tækið ekki nema 300 USD (tæpar 23 þúsund krónur án VSK) og svo er rukkað fast mánaðargjald, 40 USD (3.000 kr.) fyrir símaþjónustu og gagnaflutning. Talandi um símaþjónustu þá er rétt að benda á að Sidekick er ekki með nema miðlungsgóðan síma inn- byggðan. En það skiptir kannski minnstu, við erum jú gagnavinnslufólk. Fullvíst verður að teljast að fleiri tæki og þjónustur af þessum toga komi fram næstu misseri og vænkast þá enn hagur þeirra sem sífellt vilja vera tengdir og með gögnin sín við höndina. GRÆJA ÁRSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tölvuheimur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.