Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 14

Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 14
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I www.heimur.is14 Ágúst Tölvuheimur 2003 Ljósmyndaprentarar Epson Stylus Photo 2200 (find.pcworld.com/32093) FERRARI LJÓSMYNDAPRENTARA sem ætlaðir eru á almenningsmarkað er Stylus Photo 2200 frá Epson. Í prófunum okkar stóð hann sig iðulega betur en samsvarandi prentarar. Hann er þó í dýrari kant- inum, kostar 699 USD vestra og ekki ólíklegt að hann færi yfir 100 þúsund krónur hér heima (2100 kost- ar 99.900). Prentarinn er engu að síður auranna virði fyrir alvöru áhugamenn um ljósmyndun. Í prófun- um okkar fengum við út glæsilegar myndir með afbragðs smáatriðum, raunverulegar og með björtum ná- kvæmum litum. 2200 útgáfan er líka með fjölda aukaaðgerða og hluta, svo sem prentun stórra mynda (33 x 112 cm), pappírsrúllumatara og sjálfvirkan pappírsskera. Þá hefur prentarinn að bjóða FireWire-tengi - og um leið er hann sá eini sem jafnframt er með USB 2.0 háhraðatengi. Vegna þess að 2200 útgáfan notast ekki við hefðbundið litað blek (e. dye-based) heldur svokallað pigmented ink, eða litablek, eru litir útprentana stöðugri og vatnsþolnir. Að endingu má nefna að 2200 prentarinn gengur skrefinu lengra en hefðbundnir ljósmyndaprentarar sem eru með sex tegundir bleks með því að bæta við einu til viðbótar. Það er ljósari svartur litur sem notað- ur er til að skerpa á skyggingum og litum. Svo er meira að segja hægt að skipta út svarta litnum fyrir annan svartan sem sérstaklega er ætlaður fyrir mattan pappír. Bleksprautuprentarar Canon i850 (find.pcworld.com/35564) SÖKUM ÓTRÚLEGS HRAÐA , nákvæmni og fjölhæfni er það Canon i850 ljósmynda- prentarinn sem hittir beint í mark þegar hafðar eru í huga kröfur sem gerðar eru til skrifstofu- búnaðar fyrir heimilið. Prentarinn bunar úr sér 7,7 blaðsíðum af svörtum texta á mínútu og prentar ljósmyndir á hraðanum 0,8 síður á mínútu. Canon i850 prentarinn er einn af hrað- virkustu bleksprautuprenturum sem við höfum prófað. Hámarkslitaupplausn er 4.800 x 1.200 pát (punktar á tommu) og gerir prentaranum kleift að skila af sér miklum smáatrið- um þegar ljósmyndir eru prentaðar á glansandi ljósmyndapappír. Skaplega verðlagður papp- ír og góð ending á bleki eru svo hlutir sem lækka rekstrar- kostnað til lengri tíma litið. Ljósmyndir (sem hægt er að prenta án jaðars í stærðinni 10 x 15 cm) endast í allt að 25 ár án þess að glata gæðum ef notaður er til verksins sérstakur pappír og blek og myndirnar hafðar undir gleri. Þá er prentarinn hóflega verðlagður á 170 dollara í Bandaríkjunum en kostar samt tæpar 30 þúsund krónur hér heima. ÚTGÁFA P R E N TU N O G VINNUSTÖÐVAPRENTARAR Lexmark T630n (find.pcworld.com/35663) Þessi „skaplega“ verðlagði geislaprentari fyrir fyrirtæki (kostar 1.100 USD í Bandaríkjunum en gæti orðið á um og yfir 200 þúsund krónur hér heima) skaust á topp samanburðarlista PC World í júní með skýrri textaprentun og mikl- um hraða (22,3 textasíður á mínútu og 11 myndasíður á mínútu). GEISLAPRENTARAR FYRIR SMÆRRI SKRIF- STOFUR Brother HL-5040 (find.pcworld.com/34802) HL-5040 prentari Brother er USB 2.0 sam- hæfður og skilar frá sér hreinum texta og gráskalamyndum. Hann er líka hraðvirkur og dælir út úr sér 13,1 síðu á mínútu. LITAGEISLAPRENTARAR Data Oki C7300n frá Oki (find.pcworld.com/33929) Víst er þessi tæknilega séð ekki geislaprentari en þessi ljósdíóðutýpa (LED, sérstök gagna- vinnslutækni Oki) skilar frá sér 5,5 síðum á mínútu af litaútprentunum í geislaprentara- gæðum. FJÖLNOTAPRENTARAR Lexmark X5150 (find.pcworld.com/35021) Lexmark X5150 er í ódýrari kantinum en um leið fjölhæfur með afbrigðum. Tækið bæði skannar og afritar auk þess að hafa til að bera prentgæði sambærileg við bleksprautuprentara í sama verðflokki. HUGBÚNAÐUR FYRIR SMÆRRI ÚTGÁFU Adobe InDesign 2 (find.pcworld.com/35540) Þessi verðugi mótherji QuarkXPress heldur áfram að safna til sín áhangendum hvort heldur sem er í vinnslu útgáfu á PC eða Macintosh. FORRIT TIL VEFSMÍÐA Macromedia Dreamweaver MX (find.pcworld.com/29663) Þótt forritið sé nokkuð dýrt (kostar 399 USD eða um 40 þús. kr.) hefur það að geyma allt sem mögulega þarf til að hanna og koma upp fagmannlegri vefsíðu. Fleiri vinningshafar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tölvuheimur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.