Tölvuheimur - 01.08.2003, Page 15
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I
www.heimur.is 15Ágúst Tölvuheimur 2003
STAFRÆNAR MYNDAVÉLAR
(ÓDÝRARI ÚTGÁFUR)
Canon PowerShot S400 Digital Elph
(find.pcworld.com/35324)
Canon byggir enn á framúrskarandi hönnun
Elph línunnar þar sem myndavél með 4
megapixla upplausn er haganlega fyrir komið í
smágerðri og öruggri umgjörð.
SKANNAR
Epson Perfection 1660 Photo
(find.pcworld.com/31166)
USB 2.0 tengdi Perfection 1660 skanninn
dúxaði í hraðaprófunum okkar á myndum í
300 punkta upplausn og afritaði af nákvæmni
bæði litmyndir og svart-hvítar. Þá fylgja hon-
um aukahlutir á borð við ramma til að skanna
inn myndir af 35 mm filmum.
MYNDVINNSLUHUGBÚNAÐUR
Adobe Photoshop Elements 2
(find.pcworld.com/33110)
Hver myndi leyfa sér að setja út á
myndvinnsluforrit sem hefur að bjóða mest-
allt afl Photoshop forritsins á einum sjötta
hluta verðsins? Ef ekki er þörf á flóknari still-
ingum fyrir prentiðnaðinn er Elements besti
kosturinn.
Fleiri vinningshafar
STAFRÆN LJÓSMYNDUN
Umsýsluforrit
ljósmynda
Adobe Photoshop Album
(find.pcworld.com/33125)
ÞAÐ GETUR VIRST óyfirstíganlegt verkefni
að skipuleggja þá glás af stafrænum myndum
sem maður er búinn að taka. Þar kemur
umsýsluhugbúnaður fyrir myndir að góðum
notum. Photoshop Album er með einfalt við-
mót sem byrjar á því að spyrja notandann hvað
hann vilji gera, hvort bæta eigi nýjum myndum
í safnið eða hreinsa til í og deila safni eldri
mynda. Svo er í næstu skrefum einfalt að flokka,
deila eða sníða til myndirnar. Jafnframt er létt
verk að henda upp skyggnusýningu með uppá-
haldsmyndunum.
H E I M S K L A S S AV E R Ð L AU N I N
VONBRIGÐI ÁRSINS
[Frumkvæði Microsoft til traustvekjandi forritunar]
AF OG TIL GERIST það hjá Microsoft að þar á bæ fær fólk hugljómun. Ein slík stund átti sér stað fyrri
hluta ársins 2002 þegar Bill Gates lýsti því yfir í minnisblaði að fyrirtækið þyrfti að fara að taka örygg-
ismál og áreiðanleika hugbúnaðar föstum tökum. Skilaboðin, sem voru innanhússvinnugagn hjá
Microsoft, uxu brátt í að verða mjög svo opinbert verkefni sem kallað var Trustworthy Computing, eða
traustvekjandi forritunarvinna. En á meðan Microsoft hefur upp á síðkastið haldið upp á áfangasigra
verkefnisins hafa tölvunotendur átt bágt með að samfagna. Undanfarnir mánuðir hafa nefnilega ein-
kennst af vandræðagangi. Tölvusérfræðingar hafa fundið öryggisglufur í hugbúnaði Microsoft hraðar
en fyrirtækið hefur getað lokað fyrir þær og sumar „bæturnar“ hafa kallað fram ný vandamál. Mesta
niðurlægingin var svo í janúar sl. þegar Slammer vírusinn réðist á miðlara sem ekki höfðu verið upp-
færðir með viðbótum fyrirtækisins, - þar á meðal vélar á hugbúnaðarþróunardeildinni hjá, ótrúlegt en
satt, Microsoft í Redmond í Washington í Bandaríkjunum.
Allur þessi vandræðagangur afhjúpar hversu viðbótaleiðin í öryggismálum tölva er gloppótt.
Microsoft segja aftur á móti að Trustworthy Computing verkefnið sé 5 til 10 ára átak. Lesendur mega
því vonandi búast við að einhvern daginn förum við fallegri orðum um þessar metnaðarfullu ráða-
gerðir Microsoft.
Stafrænar myndavélar
(dýrari útgáfur)
Olympus C5050 Zoom
(find.pcworld.com/33212)
MYNDGÆÐI Í EFSTA FLOKKI, rafhlöðuend-
ing yfir meðaltali, fjöldi stillinga sem dýrari vélar
bjóða og einfalt notendaviðmót gera Olympus C-
5050 stafrænu myndavélina að góðum kosti fyrir
alvöru ljósmyndara. Vélin, sem kostar um 100 þús.
kr. (799 USD), er með 5 megapixla dýpt og fékk
einhverjar hæstu einkunnir sem við höfum séð í
prófunum, sérstaklega fyrir myndir sem teknar eru
utandyra. Svo er líka hægt að taka helling af þeim -
rafhlaða vélarinnar entist í heilar 370 tökur.
Myndavélin styður svo fjölda vistunarleiða fyrir
myndefnið, þ.á.m. XD-Picture Card (32 MB kort
sem fylgir vélinni), SmartMedia, CompactFlash og
IBM Microdrive.
Olympus tók nýjan pól í hæðina við hönnun
stjórntækja C-5050 vélarinnar. Margir hnappanna
kalla fram flettivalmynd með stórum auðskiljanleg-
um táknum. Svo þegar hnappi er snúið aftan á vél-
inni birtast ný íkon í glugga valmyndarinnar. Svona
smáatriði hjálpa til við að gera flóknari stillingar og
aðra kosti C-5050 Zoom vélarinnar aðgengilegri.
Svo er hægt að eiga við stillingar á borð við aðdrátt
með hægri hendinni einni. Þó svo að kristalsskjár
vélarinnar sem flettist fram sé ekki jafnmeðfæri-
legur og á keppinautum frá Nikon og Canon þá er
hægt að snúa honum í allt að 90 gráður - kostur
sem kemur sér vel þegar halda þarf vélinni annað-
hvort fyrir ofan eða neðan höfuð til að ná rétta
skotinu.