Tölvuheimur - 01.08.2003, Qupperneq 17
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I
www.heimur.is 17Ágúst Tölvuheimur 2003
CD-RW GEISLADRIF
GCC-4480B frá LG Electronics
(find.pcworld.com/34892)
Þetta hraðvirka 48X „kombó“ geisladrif les
DVD diska og brennir endurskrifanlega diska
(CD-RW) á 24X. Góður hraði, skaplegt verð
og góður stuðningur framleiðenda gerir drifið
að góðum kosti.
HARÐIR DISKAR
Special Edition WD Caviar framleiðslulínan
frá Western Digital
(find.pcworld.com/35579)
Þessi sérstaka útgáfa af 7.200 snúninga (rpm)
WD Caviar diskunum frá Western Digital
hefur að bjóða 8 MB biðminni (e. buffer) sem
hjálpar til við að flýta gagnaflutningi. Diskarnir
eru fáanlegir í stærðum allt frá 40 GB til 250
GB.
ENDURSKRIFANLEG DVD DRIF
Sony DRU-500A
(find.pcworld.com/31070)
Af hverju að fást um baráttu DVD + eða - RW
staðla þegar drifið frá Sony ræður við þá báða?
Okkur dettur ekkert í hug. Önnur drif sem
styðja báða staðla eru reyndar á leiðinni en nú
um stundir er DRU-500A besti kosturinn í
stöðunni.
AFRITUNARHUGBÚNAÐUR
Stomp BackUp MyPc
(find.pcworld.com/32843)
Alla jafna er ámóta gaman að taka öryggisafrit
af tölvum og að gera skattaskýrsluna eða að
brjóta saman teygjulök. BackUp MyPC frá
Stomp hjálpar til við að gera þennan
nauðsynlega þátt tölvuvinnslunnar bærilegri.
BRENNARAHUGBÚNAÐUR FYRIR
GEISLADISKA OG DVD
Roxio Easy CD & DVD Creator 6
(find.pcworld.com/33842)
Vinningshafinn í flokki bæði hefðbundinna
geisladiska og DVD diska notar þriggja skrefa
kerfi til að einfalda ferlið við að brenna efni á
diska - jafnvel þó svo að örlítið dragi úr flóknari
möguleikum.
Fleiri vinningshafar
V E R Ð L AU N Á N O K K U R S K L A S S A
GÓÐ TÆKNI SNÝST TIL VERRI VEGAR
FYRIRTÆKINU INTUIT tókst að ergja helling af notendum [ TurboTax 2002 ] skattaforritsins í
Bandaríkjunum. Yfir fyrirtækið helltist hafsjór símtala frá reiðum viðskiptavinum sem kvörtuðu yfir nýrri
og meingallaðri „gangsetningarvirkni“ (e. product activation feature) forritsins sem enginn hafði verið
látinn vita af. Keppinautar fyrirtækisins nýttu sér þegar uppákomuna í auglýsingum og sumir notendur
TurboTax hafa farið í mál við Intuit.
Samtök tónlistarútgefenda í Bandaríkjunum [ RIAA, ] (eða Recording Industry Association of
America) virðast eyða óhemjuorku í að lögsækja tónlistarunnendur sem notast við skráaskiptiforrit á
Netinu. Ef samtökin eyddu sömu orku í að koma á fót tónlistarþjónustu á Netinu sem virkaði ættu þau
kannski ekki við sama vanda að etja.
Á sínum tíma virtist hugmyndin góð, en snjallskjárinn [ Microsoft’s Windows Mira ] (þ.e.
Windows Powered Smart Displays) vakti litla lukku þegar tæknin stóð til boða í verslunum. Viðskiptavinir
í Bandaríkjunum sáu nefnilega í hendi sér að til lítils væri að borga yfir þúsund dollara fyrir þráðlausan
skjá þegar til boða standa ágætis fartölvur sem þó kostuðu minna.
Við höfum orðið vitni að mörgum yfirdrifnum vörukynningum en markaðssetning [ Centrino
örgjörvatækni Intel ] tekur samt út yfir allan þjófabálk. Örgjörvaframleiðandinn réði til starfa
Malcolm Gladwell, höfund metsölubókarinnar Tipping Point, sem sagði að tilkoma Centrino tækn-
innar kynni að verða slíkur viðburður að helst mætti jafna honum við fall Berlínarmúrsins. Jahá,
kynni að verða. Nágranninn í næsta húsi kynni líka að verða kominn með Angelinu Jolie upp á
arminn í næstu viku.
[NVidia ] fær Værir-þú-ekki-til-í-að-afþakka-verðlaunin-fyrir-skjákortið tilnefningu okkar að þessu
sinni fyrir GeForce FX 5800 Ultra - skjákort sem er með nógu háværa viftu til að fæla frá hörðustu
tölvuleikjaunnendur sem láta ekki einu sinni uppvakningana í Doom skelfa sig lengur.
Auglýsingar sem virðast við fyrstu sýn vera villumeldingar Windows urðu á þessu ári til þess að við
héldum um stund að við hefðum horfið aftur til Windows ME. Skilaboð okkar til [ Internet Washer
Pro, Spyware Nuker, ] og fleiri fyrirtækja sem beitt hafa slíkum auglýsingum eru: Vinsamlegast
smellið hér til að hætta þessu strax.
Einkageymsla fyrir gögnin
DiskOnKey 512 MB frá M-Systems
(find.pcworld.com/35552)
DISKLINGURINN ER KANNSKI ekki alveg út úr myndinni ennþá
en ef þið hafið reynt að hafa uppi á einum slíkum á skrifstofunni nýlega
hefur ykkur orðið ljóst að þeir eru á útleið. Þessi 512 MB flash-
minniskubbur er uppáhaldsvalkosturinn okkar í stað disklingsins. USB
2.0 tengingin gerir gagnaflutning leifturhraðan og jafnvel þó maður
noti útgáfur með minna minni taka þær samt miklu meira magn en
disklingar gera. Einnig er hægt að fá „risakubb“ sem tekur 1 GB af
gögnum. Nái maður sér í svona græju þarf viðkomandi aldrei aftur að
leita að disklingum.
GEYMSLUR
G
A
G
N
A