Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 27
Ó V Æ R U B A N A R
bundin forrit með skaðlegum kóða földum innanborðs)
sem ekki eru skráðir á WildList.
Til að skoða þessi mál endurstillti AV-Test.org hvert
forrit á hámarksvörn og skannaði harðan disk með yfir
71.000 skrám sem innihéldu um það bil 23.000 veirur,
orma og Trójuhesta sem ekki voru á skrá WildList. F-
Secure Anti-Virus 2003, EXtendia AVK Pro, McAfee
VirusScan 7.0, og Kaspersky Anti-Virus Personal gripu
þessar veirur í 99,96, 99,95, 99,93, og 99,91 prósentum
skránna – í þessari röð. Norton AntiVirus 2003 (99,72%)
og RAV AntiVirus (99,57%) fylgdu ekki mjög langt á
eftir fyrstu fjórum, en frammistaða þeirra við að finna
veirur og orma fyrir Win32 skrár – sem eru langalgengast-
ar um þessar mundir – var með því besta sem gerðist.
Þau tvö forrit sem eftir standa voru heldur lakari. PC-
cillin 2003 og Panda Antivirus Platinum náðu einungis
97,9% árangri hið fyrrnefnda og 96,4% hið síðarnefnda.
Panda og PC-cillin áttu einnig í vandræðum með að
koma auga á Trójuhesta, Panda fann þá í 91% tilvika en
PC-cillin í 83% (hin forritin sex náðu hins vegar að með-
altali 99% árangri hvað þetta varðaði.)
BARIST VIÐ HIÐ ÓÞEKKTA
Hvað sem líður getu veiruvarnarforritanna að eiga við
þekktar veirur þá stafar mesta hættan af hinu óþekkta. Þess
vegna leita forritin ekki bara að nákvæmri samsvörun
forrita við skrá sína yfir þekktar veirur. Þau nota einnig
tækni sem á ensku kallast „heuristics“ til að fylgjast með því
hvort óþekkt forrit líkist veirum að einhverju leyti eða taki
allt í einu upp á því að haga sér á svipaðan hátt og slík óværa.
Til að fá hugmynd um það hversu vel þessi tækni virk-
aði í þeim forritum sem við prófuðum notuðum við út-
gáfur forritanna sem höfðu ekki verið uppfærðar með nýj-
ustu veiruskilgreiningunum annars vegar í þrjá mánuði og
hins vegar í sex mánuði. Það þýddi að þau höfðu engar
upplýsingar fengið um nýjustu veirurnar á markaðinum
og því var spennandi að sjá hvernig þeim tækist til við að
grípa þessar ókunnu veirur.
Frammistaða veiruvarnarforritanna var mjög mismun-
andi og ekkert þeirra stóð sig nándar nærri eins vel og þau
höfðu gert þegar kom að því að stöðva eldri veirur. Útgáf-
urnar af EXtendia AVK Pro og F-Secure sem höfðu verið
uppfærðar þremur mánuðum áður stóðu sig best – sú
fyrrnefnda náði 75% veiranna en hin síðarnefnda 72%.
Kaspersky (69%) og McAfee (67%) komu svo fast á hæla
þeirra. Hin forritin hengu svo rétt yfir 50%. Árangur for-
ritanna, sem höfðu ekki verið uppfærð í 6 mánuði, var 7
- 14% lakari, sem bendir til þess að tæknin sem forritin
nota til að bera kennsl á óþekktar veirur byggi að hluta til
á þekkingu þeirra á nýjustu veirunum. Þessi rannsókn
sýnir því vel mikilvægi þess að uppfæra reglulega veiruskil-
greiningar forritanna, en þau bjóða öll upp á að fram-
kvæma slíkar uppfærslur sjálfkrafa (þó misjafnt sé milli
forrita hversu langur tími líði að jafnaði milli slíkra sjálf-
virkra uppfærslna.)
Þann 8. maí, þegar verið var að skrifa þessa grein, kom
nýr ormur sem kallaðist Fizzer fram á sjónarsviðið. Ekkert
veiruvarnarforritanna gat varist honum með því að beita
tækni sinni til að greina óþekktar veirur og því þurfti að
uppfæra öll forritin með veiruskilgreiningu ormsins til að
www.heimur.is 27Ágúst Tölvuheimur 2003
Þó svo
Norton sé með
einföld og auð-
skilin notendaskil
veitir forritið
einnig auðveldan
aðgang að sér-
hæfðum mögu-
leikum og still-
ingum.
Athugasemdir
Yfirburða veiruskönnun en ekki með marga möguleika.
Mjög gott forrit til að finna veirur. Hins vegar býr það ekki yfir
mikilvægum eiginleikum á borð við að tímastilla skannanir og
sjálfkrafa skönnun við ræsingu.
Erfið notendaskil koma niður á góðri veiruvörn.
Góður veiruskanni með klunnaleg notendaskil. Einnig er hægt að
láta forritið leita að njósnaforritum
Góð veiruvörn en ruglandi notendaskil. Getur skannað lófatölvur og
er með innbyggðan eldvegg.
Góð notendaskil og fjölbreyttir eiginleikar, en stóð sig ekki eins og
best var á kosið við að finna veirur. Sygate eldveggur innifalinn.
Áreiðanleg veiruvörn, einföld í notkun ásamt því að bjóða upp á
frábæra eiginleika. Skannar lófatölvuskrár og skyndiskilaboðaforrit.
Frábær notendaskil. Greining veira er ekki eins góð. Skannar lófa-
tölvur og er með innbyggðum eldvegg.