Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 30
Ó V Æ R U B A N A R
www.heimur.is30 Ágúst Tölvuheimur 2003
Fríða og dýrið: Hið flotta Ad-aware veitir bestu rauntímaskönnunina. Spybot Search & Destroy er hins vegar mjög klunnalega hann-
að en veitir bestu harðdisksskönnunina.
Hugbúnaðareldveggir á borð við Zone Labs ZoneAlarm eða
Sygate Personal Firewall (báðir ókeypis), veita aukavörn gegn
njósnabúnaði með því að láta notendur vita af forritum á tölvunni
sem vilja ná sambandi við Internetið og stöðva þau. Mörg veiru-
varnarforritanna sem við prófuðum í síðasta kafla eru með inn-
byggðan eldvegg, sem er búnaður sem engin tölva ætti að vera án.
NJÓSNARAR GÓMAÐIR, STUNDUM
Við prófuðum fjögur af bestu njósnavarnaforritunum, Lavasoft Ad-
aware Plus 6, PepiMK Software Spybot Search & Destroy 1.2, Pest-
Patrol Software PestPatrol 4.2, og Webroot Software Spy Sweeper
1.5. Í hvert sinn settum við upp forritið og ræstum svo njósnabún-
aðinn. Þar voru á ferð tvö nytjatól, Imesh 3.1 og Hotbar 4, sem
innihalda forrit á borð við Gator GAIN og CommonName sem
fylgjast með atferli notenda og birta sérsniðnar auglýsingar. Að auki
bættum við inn ActiveX kóða sem kallast Secret Admirer sem lætur
mótald tölvunnar hringja í klámlínu sem tengist klámsíðu og sett-
um upp fimm eftirlitsforrit sem keyra leynilega á tölvunni og skrá
upplýsingar á borð við lyklaborðsinnslátt og grípa myndir af skjám
notenda. Að lokum vöfruðum við um vefsíðu, OrbitExplorer.com,
sem inniheldur ActiveX kóða sem getur sjálfkrafa sett upp njósna-
búnað ef öryggi vafrans er lágt stillt.
Öll forritin náðu að uppræta stóran hluta óværunnar en Spybot Se-
arch & Destroy náði flestum njósnaforritunum. Ekkert forritanna var
þó fullkomið. Eftir að hafa skannað tölvuna með einu forriti og látið
það eyða þeim njósnaforritum sem það fann komumst við að því að
með því að prófa annað og jafnvel þriðja forritið í viðbót fannst nær
alltaf eitthvert njósnaforrit sem fyrstu njósnavörninni hafði yfirsést.
Jafnframt komumst við að því að öll forritin fundu og fjarlægðu fleiri
hluta af njósnaforritunum þegar skanninn var keyrður öðru sinni. Það
er vegna þess að njósnabúnaður er með fjölda eininga út um allt á
tölvunni sem reyna að enduruppsetja forritið eftir að reynt hefur verið
að fjarlægja það. Þannig ættuð þið ávallt að hafa ferlið þannig að þið
skannið, fjarlægið, endurræsið og endurtakið skönnunina.
Auk þess að finna flest njósnaforrit stóð Spybot Search & Destroy
sig best í að fjarlægja þau án þess að valda skaða. Það sama var t.d.
ekki hægt að segja um PestPatrol, sem fraus og neitaði að fara í gang
aftur eftir að við skipuðum því að eyða njósnabúnaðinum sem það
fann.
Rétt eins og veiruvarnarforritin geta þessi fjögur njósnavarnartól
einnig skannað vinnsluminni tölvunnar í rauntíma til að koma í veg
fyrir að njósnabúnaður geti troðið sér inn á hana. Hins vegar stóð
ekkert forritanna sig sérstaklega vel í þessu. Í flestum tilvikum tóku
þau einungis eftir einstaka einingum forritanna þegar við sóttum
þau á Netið og settum þau upp, en Ad-aware Plus stóð sig þó einna
best. Minnisskönnun er glænýr möguleiki í Spy Sweeper, sem stóð
sig verst í prófunum okkar og skanninn í Spybot Search & Destroy
er takmarkaður við ActiveX kóða og annan kóða sem er innifalinn
í vefsíðum.
Forritin fjögur voru ekki mjög mismunandi hvað varðar aðra eig-
inleika. Notendur geta stillt þau öll þannig að þau hlaðist upp og
skanni sjálfkrafa við ræsingu Windows og hvert þeirra getur látið
vita þegar framleiðendurnir hafa sett nýjar uppfærslur á lista yfir
njósnabúnað á Netið. Öll fjögur gera svo öryggisafrit af skrám áður
en þeim er eytt (það getur verið nauðsynlegt að enduruppsetja hluta
af njósnabúnaði til að hægt sé að nota aftur ókeypis hugbúnaðinn
sem njósnabúnaðurinn notaði til að læðast inn á tölvuna).
TVÖ ERU BETRI EN EITT
Njósnavarnir eru ennþá að slíta barnsskónum, en slíkur hugbúnað-
ur er þó besta vörnin sem við höfum gagnvart þessari óværu. Við
mælum með því að þið notið bæði uppáhaldsforritin okkar – Spy-
bot Search & Destroy og Ad-aware – í stað þess að nota bara eitt.
Hið fyrrnefnda stóð sig best í að skanna harða diskinn við prófanir
okkar, þó svo notendaskil þess séu frekar klunnaleg. Hið síðar-
nefnda er með notendavænni notendaskil, auk þess sem Plus-útgáf-
an (sem kostar u.þ.b. 2.000 krónur) er með vinnsluminnisskannann
sem stóð sig best í prófunum okkar. Starfsmenn Spybot Search &
Destroy vöruðu okkur við því að Ad-aware gæti í sumum tilvikum
greint skrár sem Spybot Search & Destroy-forritið væri með í sótt-
kví sem virkan njósnabúnað, en við lentum ekki í neinu slíku við
prófanir okkar.