Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 33
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I
Optimus. „Það er
tiltölulega lítið fyrir-
tæki með tvær millj-
ónir notenda, en þeir sjá
mikla möguleika í þessu og
eru tengdir Orange farsímaris-
anum. Við erum að reyna að sýna þessum fyrir-
tækjum fram á hvað þau geta þénað á Internet-
notkun farsímanotenda, því þarna er grund-
völlur fyrir mikla og almenna notkun.“ Jón er
því óhræddur við að standa við fullyrðingar sínar
um að verða innan nokkurra ára kominn með
fleiri vafra í umferð heldur en Bill Gates og
Microsoft. Fyrir um ári síðan sagðist Jón ætla að
ná þessu marki á þremur til fimm árum. Núna
segir hann of mikla bjartsýni að ætla að ná mark-
inu á þremur árum.„En það er góður möguleiki
að við náum að slá Gates við ef við vinnum vel
og erum heppin því farsímamarkaðurinn er svo
miklu stærri en PC markaðurinn.“
OPERA AÐ VERÐA NÆSTSTÆRST
Opera hefur samt langt því frá gefið aðra markaði
upp á bátinn og vinnur að þróun vafra fyrir marg-
vísleg tæki fyrir utan venjulegar heimilistölvur. Þar
heldur áfram samstarf við IBM og fleiri fyrirtæki
um svokallaða multimodal tækni. „Þar er m.a. um
að ræða bíla, flugvélar og fleiri hluti. Svo sjáum við
mikla möguleika á sjónvarpsmarkaði þar sem er
að koma inn gagnvirkt stafrænt sjónvarp. Þar er
stærri skjár, en
engu að síður svipuð
vandamál og með farsímaskjái því
upplausnin er vond og því þörf á sértækum
lausnum.“ Eins segir Jón mikla gerjun vera í gangi
á heimilistölvusviði. „Við erum að ná því marki að
verða næstútbreiddasti vafri í heimi,“ segir hann,
en annað sætið á eftir Internet Explorer hefur
hingað til verið vermt af Netscape. „Það er allur
vindur úr Netscape og þeir að hverfa af markaði.
Þá segir Jón nokkuð um að mælingar á hlut-
deild vafra á markaði séu rangar því Opera vafrinn
getur „dulbúist“ sem Internet Explorer, eða aðrir
vafrar. „Samt er í raun ekkert erfitt að mæla notk-
unina,“ sagði hann og benti á að nafnið Opera
kæmi alltaf einhvers staðar fram í auðkennis-
strengnum, jafnvel þótt vafrinn þættist vera annar
en hann er. Samkvæmt notkunarmælingum og
upplýsingum um fjölda notenda ókeypis vafra
fyrirtækisins segir Jón ljóst að notkunin sé mjög
vaxandi. „Það er samt mikill munur á markaðs-
svæðum. Þýskaland er góður markaður fyrir
okkur og Austur Evrópa líka,“ segir hann og
nefnir lönd eins og Pólland og Rússland í því sam-
hengi. Þá segir Jón að vel hafi gengið í Japan og í
Norður Evrópu. „En um leið er staðan lakari í
Suður-Evrópulöndum. Við erum ekki enn góðir í
Kína og stöndum ekki mjög vel í Bandaríkj-
unum.“ Jón bætir þó við að þótt útbreiðslan sé
ekki mikil í Bandaríkjunum fari stór hluti
af sölu fyrirtækisins fram þar. „Bandaríkja-
menn borga oftar en Evrópubúar.“ Í
Þýskalandi segir Jón að markaðshlut-
deildin sé um 3,5 prósent og allt að 6 pró-
sent í Rússlandi.
Á MARKAÐ Á NÆSTA ÁRI
Jón segir reyndar að frestað hafi verið
fyrirætlunum um að setja fyrirtækið á
markað, en stefnt hafði verið að því að
gera það á þessu ári að gefnum þeim for-
sendum að fyrirtækið hefði stöðugar
tekjur og reksturinn skilaði hagnaði.
„Við höfum ekkert verið að flýta okkur
að því. Bæði töldum við að markaðurinn
væri ekki tilbúinn og svo vildum við líka
ná fyrirtækinu í plús. Það markmið erum
við að nálgast,“ sagði hann og bætti við
um leið að hann og stjórn fyrirtækisins
væru frekar ánægð með fjárhagshlið
rekstursins. „Á árinu höfum við tvöfaldað
sölu fyrirtækisins án þess að kæmi til kostnaðar-
aukningar. Á sama tíma höfum við svo verið að
eiga við fullt af nýjum hlutum, sérstaklega á sviði
farsímatækni,“ sagði hann.
Jón segir samt ljóst að á endanum verði fyrir-
tækið skráð á markað, en telur samt ýmsa kosti
við að gera það ekki strax. „Það fylgja alls konar
kvaðir skráningu. Þá kemur til rík upplýsinga-
skylda og svo geta fylgt því auknar sveiflur og
spákaupmennska að vera með fyrirtæki skráð á
markað. Auðvitað vilja fjárfestar okkar fá okkur
á markað en þeir vilja líka passa upp á að tíma-
setningin sé rétt og ekki of snemma af stað farið.
Sumir okkar fjárfestar eru í þannig stöðu að þeir
verða að selja hlutabréf sín þegar fyrirtækið
verður skráð á markað. Þeir vita að því lengur
sem beðið er með skráningu þeim mun verð-
mætara verður fyrirtækið þegar að skráningunni
kemur.“ Svo segir Jón að fjármálamarkaðurinn
hafi verið erfiður, en þó hafi fyrirtækið nýlega
tekið inn nýja hluthafa til að fá aukið fé til
rekstursins. „Við máttum alls ekki við því að
missa niður dampinn núna og þurftum meira fé
til að keyra áfram þróunarvinnuna.“ Hann segir
að vissulega hafi valdahlutföllin breyst með
þessu en þó ekki svo að þeir félagar hafi misst
stjórn á fyrirtækinu. „Við stefnum að því að fara
á markað á næsta ári, svo fremi aðstæður séu
réttar,“ sagði hann gætinn.
www.heimur.is 33Ágúst Tölvuheimur 2003
Símar á borð við Nokia
7650 (til vinstri) og 3650
(til hægri) eru símar sem
henta Opera-vafranum
ágætlega.