Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 38

Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 38
V É L B Ú N A Ð U R ákveða hverjum skuli treysta. Jafnframt skuluð þið vara ykkur á gagnrýni höfunda sem gætu jafnvel ekki haft mikið vit á því sem þeir eru að segja. Til dæmis gæti neikvæð gagnrýni orsakast af vanda- málum sem eiga upptök sín hjá notandanum en ekki sjálfri vörunni. Ef til vill hafði notandinn bara reynt að nota vöruna í einn dag eða vissi ekki hvernig átti að nota hana. NÝTIÐ YKKUR TÓLIN Að treysta gagnrýni á vefjum sem þessum er ein- ungis einn hluti málsins. Að endingu er það fyrir mestu hvað þið fáið út úr því að nýta ykkur vefina. Epinions.com, CNet Download.com og PC- PhotoReveiw.com bjóða upp á frábærar leitarvélar og sýna ykkur á skjótan hátt gagnrýnina sem þið viljið finna. Á Photo.net er notendagagnrýnin hins vegar í nokkurra smella fjarlægð, falin í Ez- Shop hluta vefsins, auk þess sem leitarvél vefsins var ekki upp á marga fiska. Þegar við slógum til dæmis „Canon PowerShot G2“ inn í leitarvélina fengum við engar niðurstöður jafnvel þótt til hafi verið 22 umfjallanir um þessa myndavél sem þurfti þá að finna með öðrum hætti. Þegar við fórum í gegnum vefina fundum við ekki margar umfjallanir um nýlegar vörur. Enginn þeirra hafði til dæmis fleiri en þrjár umfjallanir um Rio S50 MP3 spilarann frá Sonicblue. Sumir vefirnir voru með fjölda síðna umfjöllun um eina vöru en einungis örfá ummæli um aðrar. NewEgg.com, sem er netverslun, gat til dæmis stært sig af 112 greinum þar sem ATI Radeon 9700 Pro skjákort voru gagnrýnd, en einungis 6 umfjallanir um Windows XP Home Edition. Sökum þess að mismunandi vefir draga til sín notendur með mismunandi áhugamál er skyn- samlegt fyrir ykkur að líta vel í kringum ykkur þangað til þið finnið vefi sem falla að áhugamálum ykkar og sérfræðiþekkingu. Þó svo gagnrýni á flestum vefjunum hafi farið í gegnum að minnsta kosti lágmarkssíun, þýðir það ekki endilega að hún sé þess virði að lesa hana. Þar kemur álit annarra notenda – ef það er í boði – til skjalanna. Vefir á borð við Amazon.com, Epinions.com og PCPhotoReview.com biðja not- endur um að segja til um hversu gagnleg notenda- gagnrýnin er hverju sinni. Meðaleinkunnin sem gagnrýnin svo fær hjá notendum segir til um það hvort hún birtist ofarlega á lista umfjallana um hverja vöru eða dettur neðar. Þannig þurfa not- endur síður að leita dyrum og dyngjum að almennilegri umfjöllun, heldur nægir í flestum tilvikum að lesa bara nokkrar þær fyrstu. EINBEITIÐ YKKUR AÐ SMÁATRIÐUNUM OG GLEYMIÐ HEILDAREINKUNNINNI. Flestir vefir leyfa notendum að raða gagnrýni upp eftir einkunn eða dagsetningu. Epinions.com býður svo upp á að sníða þetta jafnvel enn meira eftir eigin höfði. Þar geta not- endur búið til það sem kallað er „Web of Trust“, þar sem þeir geta valið út gagnrýnendur sem þeir telja að séu svipað þenkjandi og þeir sjálfir. Eftir það birtast allar umfjallanir þessara gagnrýnenda efst á listanum yfir umfjöllun um ákveðna vöru ef þeir hafa skrifað um hana. En jafnvel eftir að þið hafið nýtt ykkur síur af þessu tagi og önnur tól sem boðið er á vefjunum verðið þið samt sem áður að ákveða hvort gagn- rýni nýtist ykkur hverju sinni. „Besta gagnrýnin er ítarleg, ber vöruna saman við svipaðar vörur og er eftir einhvern sem hefur notað vöruna nógu lengi til að þekkja hana út og inn,“ segir John Shafer, talsmaður PCPhotoReview.com. Því skuluð þið grandskoða smáatriðin, sérstaklega neikvæðu athugasemdirnar og ekki skoða bara einkunnagjöfina (í kaflanum „Nýtið notenda- gagnrýni til hins ítrasta“, hér annars staðar í umfjölluninni, er fjallað nánar um þetta.) Með æfingu verðið þið fljótt hæf í að renna yfir gagnrýni og sigta út þá umfjöllun sem veitir ykk- ur virkilega það sem þið leitið að. Munið að fólk er áhugasamast um að skrifa slíka umfjöllun ýmist þegar það er yfir sig hrifið eða öskureitt. Því er almenna reglan sú að gagnrýni sé oftast mjög jákvæð eða mjög neikvæð – enn ein ástæðan fyrir því að skoða smáatriðin en gleyma meðaleink- unninni. Og reynið að lesa eins margar umfjall- anir og þið mögulega getið. Þannig jafna þær virkilega góðu út allt bullið sem finnst í lélegu greinunum. www.heimur.is38 Ágúst Tölvuheimur 2003 VE F I R A Ð O K K A R S K A PI PCPhotoReview.com einfaldar notendum að renna yfir það helsta áður en kafað er í smá- atriðin. Þar er fjöldi umfjallana um hverja vöru efst (1) auk með- aleinkunnar (2). Svo er uppsetn- ingin (3) þannig að í fljótu bragði má renna yfir jákvæða og nei- kvæða eiginleika vörunnar. 

x

Tölvuheimur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.